Kælikrem?
Sent: Fim 09. Júl 2009 21:32
af littel-jake
Er að spá hvort að það sé einhver munur á þessu. Eða er þetta allt sama shitið?
Re: Kælikrem?
Sent: Fim 09. Júl 2009 23:31
af lukkuláki
Já það er hellings munur á þessu.
Kremin leiða hitann ótrúlega misjafnlega vel, það getur munað miklu að vera með gott kælikrem
það getur hreinlega skilið á milli þess hvort tölvan slekkur á sér vegna ofhitnunar eða kæli tölvuna nægjanlega vel. Getur munað mörgum gráðum.
Arctic silver 5 er það besta sem ég hef prófað til þessa og ég hef prófað nokkrar tegundir en ég hef svo sem ekki gert vísindalega könnun á þessu en reynslan kennir manni margt. Mæli með þessu:
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=849Ég væri til í að prófa þetta fljótlega:
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_75_88&products_id=616
Re: Kælikrem?
Sent: Fös 10. Júl 2009 00:14
af jonsig
Þegar ég var að vesenast með þetta á thermalright ultra 120. . þá lækkaði hitinn um 2-3c° í keyrslu.. miðað við no-name krem .. og notaði við skiptin sérstaka hreinsivökva frá artic silver til að hreinsa silicone leyfar af gamla kreminu
artic silver er samt betra ef þú ert ekki að rífa heat sink´inn af örranum þínum oft , til lengri tíma gefur það betri kælingu útaf það storknar ekki , þeas ætti ekki að verða solid með tímanum
mæli samt ekki með þessu ef þú ert með örgjörva sem hitnar ekki mikið ... þetta er must með AMD6400+ sem td hitnar alltof mikið
Re: Kælikrem?
Sent: Fös 10. Júl 2009 00:46
af ManiO
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=562 Flest review sem ég hef lesið mæla með þessu.