Síða 1 af 1

Yfirklukkun

Sent: Mið 29. Apr 2009 12:56
af KermitTheFrog
Nú er maður að spá. Mig langar ekki að fá linka á einhverjar greinar eða shit. Mig langar bara til að vita hvað þarf að hafa í huga, bara upptalning á hlutunum.

Hvað þarf maður að hafa í huga við yfirklukkun? Svona réttá áður en maður fer að eyðileggja eitthvað

Var að spá í að klukka setup í undirskrift en datt í hug að ég þyrfti hraðara minni, right?

Re: Yfirklukkun

Sent: Mið 29. Apr 2009 14:46
af Glazier
1. Vera 150% viss um að tölvan sé nógu vel kæld
2. Vita hvað þú ert að gera

Hvaða minni ertu að tala um í undirskrift ?
Edit: sé það núna.. neinei þarft ekkert betra en þetta ;) þetta er meira en nóg

Re: Yfirklukkun

Sent: Mið 29. Apr 2009 15:25
af Allinn
KermitTheFrog skrifaði:Nú er maður að spá. Mig langar ekki að fá linka á einhverjar greinar eða shit. Mig langar bara til að vita hvað þarf að hafa í huga, bara upptalning á hlutunum.

Hvað þarf maður að hafa í huga við yfirklukkun? Svona réttá áður en maður fer að eyðileggja eitthvað

Var að spá í að klukka setup í undirskrift en datt í hug að ég þyrfti hraðara minni, right?


800MHz hraði á vinnsluminni er flott fyrir létta yfirklukkun.

Re: Yfirklukkun

Sent: Fös 19. Jún 2009 03:32
af Gúrú
Vá bottar í dag sökka =/

Re: Yfirklukkun

Sent: Fös 19. Jún 2009 03:51
af Selurinn

Re: Yfirklukkun

Sent: Fim 25. Jún 2009 07:49
af chaplin
Eina sem ég veit um örgjafan þinn er að hann nær 4GHz leikandi á stock kælingu. ;)

http://www.overclock.net/intel-cpus/375 ... -club.html

Þarna er basicly klúbbu sem fjallar um að klukka örgjafan þinn, nota þessa síðu mikið og náði t.d. mínum úr 2.13GHz í 3.4GHz með þeirra aðstoð. :wink:

Re: Yfirklukkun

Sent: Mið 19. Ágú 2009 13:10
af KermitTheFrog
Jæja, ég er kominn eitthvað á leið með þetta:

Mynd

Hækkaði FSB í 400MHz og kom honum þannig í 3.6GHz en var að spá hvort ég kæmi honum ekki hærra. En ég er bara með 800MHz minni og 1600MHz FSB á móðurborðinu þannig að ég var að spá hvort það væri óhætt að hækka FSB meira og yfirklukka minnin og það?

Mynd

Re: Yfirklukkun

Sent: Þri 25. Ágú 2009 11:02
af Selurinn
Sæll,

Það er allt í lagi að yfirklukka minnin smávegis.
Minnin mega alveg keyra +0.2-0.3 yfirvolt á sig, en þú vilt ekki fara hærra í latencium en 5-5-5-18.
Best er að slaka verulega á minninum þ.e.a.s til að byrja með, settu bara timings eins og í 6-6-6-18
Það sem þú vilt gera er að komast að því hversu hátt örrin kemst án þess að minnin sé að valda einhverjum usla.
Þegar því er náð þá viltu reyna að klukka minnin eins hátt og í samræmi við örran, gæti verið að þú þurfir að nota dividera, vegna þess það fer gjörsamlega eftir minninum hversu hátt þau vilja klukkast.

Kveðja.....

Re: Yfirklukkun

Sent: Þri 25. Ágú 2009 17:03
af KermitTheFrog
En má ég fara með rated FSB hærra en 1600MHz? Þar sem á heimasíðu móðurborðsins segir "FSB: 1600MHz".

Re: Yfirklukkun

Sent: Mið 26. Ágú 2009 12:50
af Selurinn
Máttu það?
Örugglega ekki samvkæmt framleiðanda.

Ég hef alltaf klukkað borðinn yfir rated FSB, þú skemmir ekkert ef þú átt við það.....

Re: Yfirklukkun

Sent: Mið 26. Ágú 2009 16:00
af chaplin
KermitTheFrog skrifaði:En má ég fara með rated FSB hærra en 1600MHz? Þar sem á heimasíðu móðurborðsins segir "FSB: 1600MHz".

Já það má, núna eru framleiðendur oft farnir að taka fram FPS Rate 1066/1333/1600(OC), móðurboðið mitt er fyrir 800MHz minni, er með 1000MHz redline, virkar fínt.