Síða 1 af 1

HEHEHEH!!!

Sent: Mán 01. Des 2003 22:08
af JonsI
Nei nú verð ég að taka pásu frá lesningu og segja ykkur!

Ég er nemi í Iðnskólanum í Rvk að læra undir próf í áfanga Tæk203 sem er um grunnatriði vélbúnaðar Pc tölvunar.
Hérna kemur orðrétt uppúr kennslubókinni Vélbúnaður -á eigin spýtur eftir Michael B. Karbon (dani) og þýdd eftir Gunnar Grímson:


Kæling er síðan fræði útaf fyrir sig. Margir "nördar" reyna að pína örgjörva í hærri tiftíðni en þeir eru ætlaðir fyrir.


Fagmanlega orðað? Fyrirgefið ef ég særi einhvern en ég bara varð að taka smá pásu frá lesti og deila þessu með ykkur :D

Kv. JonsI

Sent: Mán 01. Des 2003 22:46
af gumol
Nördar, það er tölvunördar. Hvaða hálviti skrifaði þessa bók eginlega ;)

Ertu með fleiri skemmtilegar línur?

Sent: Mán 01. Des 2003 23:57
af kemiztry
lol snilld :lol:

Sent: Þri 02. Des 2003 00:31
af SkaveN
Iðnskólinn er heldur ekkert í lagi um val á bókum.. hef verið þar í 3ár nuna og er þunglyndur :lol:

Sent: Þri 02. Des 2003 01:07
af RadoN
það á held ég við um flesta framhaldsskóla :wink:

Re: HEHEHEH!!!

Sent: Mán 08. Des 2003 10:37
af Bendill
JonsI skrifaði:Hérna kemur orðrétt uppúr kennslubókinni Vélbúnaður -á eigin spýtur eftir Michael B. Karbon (dani) og þýdd eftir Gunnar Grímson:

Er það ekki barasta mál að skella sér til Danaveldis og lumbra á einu stykki dana og fá sér einn kaldan jóla í leiðinni? :twisted:

Sent: Mán 08. Des 2003 11:31
af kiddi
Hvaða orð er hentugra fyrir mann sem æsist upp af því að fikta í innviðum tölvunnar sinnar? Einhvers sem gjörsamlega nýtur þess og finnur til stolts eftir að hafa yfirklukkað vélina sína aðeins?

Nördar, hvort sem það er í tölvum, vísindum, bókmenntum, bíómyndum eða whot-ever, er bókstafleg þýðing fyrir þá sem njóta þess að kryfja allt í tætlur til að læra sem mest um allt... til þess eins að læra sem mest um allt. Vel orðað hjá Gunnari Gríms að mínu mati :)

Sent: Mán 08. Des 2003 12:49
af Zaphod
Tölvuáhugamenn hefði nú verið fallegra þarna .



En ætli þetta sé bara ekki rétt hjá kidda !

Sent: Mið 10. Des 2003 15:15
af Hlynzi
hehe...

Sumir kunna ekki að þýða bækur eða skrifa þær. nörd er svona stundum neikvætt orð, hvernig nördi svo sem maður er. Tölvuáhugamaður er samt mun fallegra orðað, og fagmannlegra.

Sent: Fim 11. Des 2003 18:36
af Cary
Hvaða maður skrifar bók um tölvur ef hann er svo ekki tölvunörd..?

Sent: Fim 11. Des 2003 20:06
af Hlynzi
Cary skrifaði:Hvaða maður skrifar bók um tölvur ef hann er svo ekki tölvunörd..?


Sá sem er í businessinum útaf peningunum.

Sent: Fim 11. Des 2003 20:55
af halanegri
rofl, já, örugglega einhver milli sem skrifar bækur um vélbunað fyrir framhaldsskóla