Síða 1 af 1

Hvað er besta örgjörvaviftan sem til er.....

Sent: Þri 25. Nóv 2003 22:50
af snibbsio
Sælir....

Ég er að fara kaupa mér örgjörvaviftu !ekki vasskælingu"

Fyrir Socket A , xp athlon , örgiörva.

Allar viftur sem ég get fengið eru hérna : http://www.malabs.com/detail.asp?comp_i ... CPU%20Fans

Þarf hjálp við að lækka hitan í örranum :s

Endilega hjálpið mér að finna sá bestu

Sent: Þri 25. Nóv 2003 23:05
af Deus
aero7+ ?

Sent: Þri 25. Nóv 2003 23:16
af Lakio

Sent: Þri 25. Nóv 2003 23:21
af inFiNity
verð að vera sammála Lakio með Zalman..7000A-CU

en einnig er http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=586 mjög svo góð ef þú færð þér Smart FanII á hana eða Þessa http://start.is/product_info.php?cPath= ... ucts_id=56

Sent: Þri 25. Nóv 2003 23:22
af Pandemic
ekki taka Zalman CNPS7000A-Cu hávær þótt allir seigi að hún sé rosalega lágvær hún er þung móbóið byrjar að svigna eftir nokkra mán hef séð þetta með eigin augum :shock: og hún keyrir á mjög fáum snúningum.

Sent: Þri 25. Nóv 2003 23:26
af inFiNity
Með hvaða ofur heyrn ert þú með Pandemic? :roll:

Er með þessa viftu og það heyrist sama sem ekkert í henni! og já hún er í 2400rpm.

Búinn að hafa hana á í nokkra mánuði og get ekki séð að moboið hja mér sé eitthvað að bjagast :wink: léstu þetta ekki bara kolvitlaust á hja þér/þínum?

Sent: Þri 25. Nóv 2003 23:30
af Lakio

Sent: Þri 25. Nóv 2003 23:48
af RadoN
ég er að nota Aero 7+ og er alveg sáttur :)

Sent: Mið 26. Nóv 2003 01:05
af aRnor`
Nokkuð viss um að þetta byrji að svigna ef maður er að ganga með hann einhverjar vegalengdir með þetta á eða að hrista hann einhvað. Annars er þetta búið að vera á mínu móður borði í 5 mánuði og ekki sé ég að móðurborðið sé að svigna einhvað.

Sent: Mið 26. Nóv 2003 07:47
af elv
Þetta er besta heatsink sem til er á landinu http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=586

og með þessari viftu http://start.is/product_info.php?cPath= ... ucts_id=67

geturðu fengið kælingu sem jafnast á við vatnkælingu

Sent: Mið 26. Nóv 2003 08:32
af Gothiatek
Gott hjá start.is að taka fram að viftan sé ekki hljóðlát....gott framtak, einmitt eitthvað um það að vörur séu auglýstar hljóðlátar en svooooo má nú deila um það!!!

Sent: Mið 26. Nóv 2003 13:05
af RadoN
já, en spáðu í því.. þessi vifta er örugglega algjört HELL, fyrst þeir segja að hún sé ekki hljóðlát

Sent: Mið 26. Nóv 2003 14:42
af OliA
Hún er hell já, en með Thermalright SLK-947U getur ekki annað verið en að hún sé að virka! ;)

Fan Speed: 5700 RPM
Air Flow: 84.1 CFM

Getur ekki annað en verið góð vifta.
Sjáum til hvernig heatsinkið stendur sig með 1300rpm viftu. Var að kaupa svona handa konunni, pósta á morgun hvernig gekk og hvernig sinkið stendur sig!

Sent: Mið 26. Nóv 2003 14:54
af snibbsio
Well já ég er nú að hugsa um að halda mig innan listans sem kemur fram í byrjun;)

En já er ekkert vit í þegar Volcano 12+ kemur fyrir AMD???

Sent: Mið 26. Nóv 2003 15:19
af gnarr
ef þú ert ekki í overclock hugleiðingum, þá áttu bara að hugsa um háfaðann í þessu. þetta er í rauninni allt sama stöffið, kælir allt nánast jafn mikið á örjörfa sem er ekki clockaður.

Sent: Mið 26. Nóv 2003 16:38
af snibbsio
ég er nú reyndar kannski að fara overclocka xp2500 örgjörva

ætla sjá hva ég get mögulega komið honum hátt og er því að fara kaupa móðurborð með nforce 2 kubbasettinu.


Og mun fylla kassan af viftum þar sem hávaði er ekkert vandamál fyrir mig.

En það verður allt að vera á http://www.malabs.com/display.asp

Svo ef þið sjáið eitthva sniðugt þar endilega látið vita....

T.d. er ég að pæla útí þetta snilldardót:

http://www.malabs.com/product.asp?produ ... s=&shopid=
http://www.malabs.com/product.asp?produ ... s=&shopid=

Sent: Mið 26. Nóv 2003 17:00
af gnarr
þú veist að það er búið að læsa xp línunni?

Sent: Mið 26. Nóv 2003 17:35
af elv
Volcano12 er mjög svipaður og SLK-800.
Volcane 12 er að fá ágætis dóma

Sent: Fim 27. Nóv 2003 16:14
af snibbsio
Hvernig þá ?

Sent: Fim 27. Nóv 2003 18:02
af elv
Svipuð hönnun á þeim tveim.Sumir ganga svo langt að segja að hönnuninn á Volcano 12 sé stolin frá SLK800.

Sent: Fim 27. Nóv 2003 23:20
af snibbsio
gnarr skrifaði:þú veist að það er búið að læsa xp línunni?



Hvað ertu að meina ?

Sent: Fös 28. Nóv 2003 07:59
af viddi

Sent: Fös 28. Nóv 2003 10:42
af gnarr
það er búið að multiplyer læsa xp línunni, svo það er bara hægt að fsb clocka þá ;(

Sent: Fös 28. Nóv 2003 14:40
af Bendill
Ég mæli eindregið með Vantec Tornado viftum.... FYRIR HEYRNARLAUSA!

55-58 desíbel... Þetta er eins og að stinga hausnum inní vélarrými á Strætó á 4000 rpm :D
Ég á eina 80mm og ég keyrði hana á 5v í flestum tilvikum, en þetta eru brjálaðar viftur fyrir þá sem láta það ekki fara í taugarnar á sér.

Sent: Lau 27. Des 2003 14:46
af Icarus
Sjit, hvað það hlýtur að vera mikill hávaði í þessari Tornado viftu. Ég er með Thermaltake viftu sem keyrir á 4800rpm við 48dBa og það er að heyrast útum allt hús eða eitthvað. :(

Þess vegna er ég að fara að panta mér nýjar kassaviftur núna á mánudaginn.