Síða 1 af 1

Shuttle pæling :)

Sent: Fim 05. Feb 2009 15:37
af raggzn
Ég var að pæla, í shuttle tölvunum er þá mATX móðurborð eða ? er hægt að versla mATX móðurborð útí búð og skellt því í einn tóman svona kassa :) ? Hef nefnilega orðið var um að sumir hafa verið að auglýsa bara kassan til sölu vegna ónýts móðurborðs hvort maður gæti ekki redddað sér einu svona á slikk ^^,

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fim 05. Feb 2009 15:53
af mind
Shuttle borðin er alveg örugglega sér framleiðsla svo nei þú gætir ekki bara verslað eitthvað svona borð.

Að kaupa móðurborðið nýtt úti tölvubúð kæmi líklega til með að kosta næstum jafn mikið og allur kassinn með borðinu.

Hinsvegar ef þú kannt á ebay gætirðu reddað þér ef þú ert klár.

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fim 05. Feb 2009 16:01
af KermitTheFrog
Mitt gúgl sýnir µATX borð í shuttle vélum

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fim 05. Feb 2009 16:40
af TechHead
Móðurborðin í XPC tölvunum eru ekki stöðluð mATX móðurborð.

Þarft að láta sérpanta fyrir þig borð hjá XPC innflutningsaðila og eins og fram kemur hér fyrir ofan þá er það nánast jafn dýrt og nýtt barebone.

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fim 05. Feb 2009 17:14
af raggzn
haldiði að það er hægt að troða einu svoleiðis móðurborði í með smá moddi ? =)

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 09:11
af TechHead
raggzn skrifaði:haldiði að það er hægt að troða einu svoleiðis móðurborði í með smá moddi ? =)


Nei.

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 10:49
af Hyper_Pinjata
µATX (Micro ATX) móðurborðin passa í eldri shuttle kassana....hvernig veit ég það? ég er með "Shuttle" PN35N móðurborð sem ég fékk gefins....bara ósköp venjulegt µATX móðurborð.....

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 11:23
af TechHead
Ekki veit ég hverskonar "eldri SFF Shuttle kassi" það hefur verið en öll XPC móðurborðin eru með þennan form factor:

Mynd

Og eins og má sjá þá er þetta ekki venjulegt mATX/µATX layout.

Öll P og G barebone´in þurfa borð með þessu layout.

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 13:22
af Hyper_Pinjata
nei...

móðurborðið var ekki úr Dell XPC eða neinu þannig,ekki BareBone heldur....bara venjulegri 2004 shuttle vél...með svona litlum kassa....

Edit: http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 4dbe10bc36 Grrrrrrrr

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 13:37
af TechHead
raggzn skrifaði:Ég var að pæla, í shuttle tölvunum er þá mATX móðurborð eða ? er hægt að versla mATX móðurborð útí búð og skellt því í einn tóman svona kassa :) ?


Maðurinn var að spyrja hvort mATX borð myndi passa í Shuttle XPC barebone, sem það gerir alls ekki.

Var einfaldlega að leiðrétta rangt svar frá þér Hyper_Pinjata :wink:

p.s. þetta : http://www.att.is/product_info.php?cPath=26_101&products_id=4206&osCsid=588b415cafe2b218b4aad24dbe10bc36 er ekki Shuttle kassi.

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 14:57
af Hyper_Pinjata
XPC eru ekki einu Shuttle kassarnir,voru það allavega ekki síðast þegar ég vissi....man alveg eftir því fyrir 2 árum voru venjuleg µATX móðurborð í þeim....en ekki XPC kössunum,bara Shuttle Vélunum sem voru í svona litlum kössum...

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 15:06
af TechHead
Hyper_Pinjata skrifaði:XPC eru ekki einu Shuttle kassarnir,voru það allavega ekki síðast þegar ég vissi....man alveg eftir því fyrir 2 árum voru venjuleg µATX móðurborð í þeim....en ekki XPC kössunum,bara Shuttle Vélunum sem voru í svona litlum kössum...


Shuttle er skrásett vörumerki og XPC vélarnar ásamt M1000/2000/**** MediaCenter vélunum eru einu "kassarnir" sem þeir hafa selt undir Shuttle brandinu.
Þeir kassar hafa aldrei og taka ekki mATX móðurborð

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 15:11
af Cikster
Ef einhver er að pæla í að fá sér litla vél þá sá ég að tölvulistinn er með einhverja nokkra µATX kassa (ekki shuttle) á lítinn pening á útsölunni sinni.

Re: Shuttle pæling :)

Sent: Fös 06. Feb 2009 19:53
af raggzn
þakka góð svör, alltaf verður maður fróðari með deginum ;)