Síða 1 af 1

Ljós í lyklaborð

Sent: Lau 27. Des 2008 04:18
af KermitTheFrog
Langar að skipta gul-grænu ljósunum í lyklaborðinu mínu út fyrir blátt ljós.. Hvað virkar best í þetta??

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Lau 27. Des 2008 15:47
af zedro
Halló hvernig lyklaborð ertu með plebbi, við erum ekki skyggn :P

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Lau 27. Des 2008 21:18
af supergravity
Opnar lyklaborðið og tússar með bláu yfir ljósin :8)
Annars væri líka sniðugt að segja okkur, eins og Zedro nefndi, hvaða tegund af lyklaborði þetta er, eða opna það og peista mynd af því.

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Lau 27. Des 2008 23:30
af Allinn
Er það ekki G-15 sem er með gul grænan lit?

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Lau 27. Des 2008 23:34
af FummiGucker
appelsínunugulum lit allavegana nýa útgáfan
gamla var með bláum

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fim 01. Jan 2009 23:08
af KermitTheFrog
Mynd
Mynd

Þetta eru perurnar sem ég vil fá bláar

Og, nei.. Það virkar ekki að tússa þær (ekki með þeim tússum sem ég prufaði

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fim 01. Jan 2009 23:11
af IL2
Færðu ekki nýjar í Íhlutum eða Miðbæjarradíó og svo bara draga upp lóðboltan.

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fim 01. Jan 2009 23:44
af Opes
IL2 skrifaði:Færðu ekki nýjar í Íhlutum eða Miðbæjarradíó og svo bara draga upp lóðboltan.

Ég held að þetta ætti ekki að vera neitt mál, bara kaupa nýjar LED's og lóða :). No offence, en ég myndi ekki nenna þessu fyrir lyklaborð :P.

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fös 02. Jan 2009 00:13
af Hjöllz
gætir prufað að kaupa bláa perusmokka og séð hvernig það kemur út

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fös 02. Jan 2009 00:45
af KermitTheFrog
Hjöllz skrifaði:gætir prufað að kaupa bláa perusmokka og séð hvernig það kemur út


Hvar fæ ég það??

Held ég nenni samt ekki að fara í miklar framkvæmdir fyrir 3 litlar perur.. Fattaði bara að það er ósjálfrátt soldið blátt þema á tölvuaðstöðunni minni: 2x bláar LED viftur, viftustýring með bláum ljósum og svo blátt LED á on/off takkanum á skjánum mínum

Þetta stendur bara útúr

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fös 02. Jan 2009 01:00
af Opes
Smokkar með perubragði :lol:

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fös 02. Jan 2009 01:21
af Hjöllz
ætti að fást á bensínstöðum t.d. N1

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fös 02. Jan 2009 07:50
af einzi
Þetta er nú ekki mikil framkvæmd. Eins og þeir segja .. verða sér útum 3 bláar díóður, draga upp lóðbolta og svo bara skipta.

Re: Ljós í lyklaborð

Sent: Fös 02. Jan 2009 13:15
af Gunnar
en mundi að setja lengri vírinn þar sem + er. :shock: