Síða 1 af 1
Open A Kassanir Vinsælastir ?
Sent: Þri 11. Nóv 2003 11:29
af goldfinger
Eru Open A kassanir vinsælastir ?
Ég var á JAMMA battlefield lani síðustu helgi og það voru 7 manns með Open A kassa ef ég tel mig með af 12!
Sent: Þri 11. Nóv 2003 11:34
af gnarr
samkvæmt skoðunarkönnun hérna á vaktinni er dragon lang vinsælast. a open gera samt MJÖG góða kassa
Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:00
af Fox
Hvaða máli skiftir kassinn?
Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:08
af BoZo
Fox skrifaði:Hvaða máli skiftir kassinn?
Hann skiptir öllu máli
Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:21
af Fox
Afhverju ?
Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:33
af Voffinn
Góður kassi þýðir gott loftflæði.
Betra að hafa rými svo það sé ekki allt í klessu.
Góður kassi er úr góðu efni => minni tittringur og hávaði.
Góður kassi er vel hannaður að innan, hugsað fyrir öllu.
Bara svona sem dæmi.
Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:34
af Fox
Góður kassi er dýr
Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:41
af BoZo
Góður kassi er vel þess virði
Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:50
af Voffinn
Fox skrifaði:Góður kassi er dýr
Nei, alveg kolrangur hugsunarháttur hjá þér. Lélegur kassi er ódýr.
Sent: Þri 11. Nóv 2003 14:31
af legi
Má bæta því við að góður kassi lítur oftast betur út, það er ekkert gaman að hafa forljótan tölvukassa..
Sent: Þri 11. Nóv 2003 15:10
af Arnar
Og er venjulegur Dragon kassi góður eða slæmur?
Sent: Þri 11. Nóv 2003 15:49
af viddi
minn kostaði rétt svo um 7000 kall
hann er nógu stór fyrir mig
Sent: Þri 11. Nóv 2003 17:43
af Fox
Venjan er sú að kassar á íslandi eru dýrir.
Það er hægt að fá custom made kassa að utan fyrir undir 20þúsund, mjög flotta. Checkið ebay.
Sent: Þri 11. Nóv 2003 18:19
af RadoN
hvað er málið með fox og ebay? og ef þér finnst custom made kassi á 20þús ekkert mikið ætti ekki að vera mikið mál fyrir þig að kaupa einn góðan Dragon kassa á 7þús, ég fékk mér Dragon2 á 14þús fyrir nokkrum mánuðum
Sent: Þri 11. Nóv 2003 18:21
af Fox
Sá kassa á ebay um daginn fyrir 16 harðadiska, það var flot, mjög mikið pláss, hann var svipað breiður og 3 turn kassar og jafn hár og dragon kassi. Það voru 2 haldföng ofaná honum til að færa hann til, og pláss fyrir 2 power supply.
Sent: Þri 11. Nóv 2003 18:24
af RadoN
það myndi ég kalla server kassa..
Sent: Þri 11. Nóv 2003 19:28
af Arnar
Hvað er málið með þig og ebay?
Sent: Þri 11. Nóv 2003 20:35
af Snorrmund
Já en ég er að pæla hvort þetta eigi ekki að vera Aopen ? ekki Open A ? bara benda á þetta ekkert illa meint.