Síða 1 af 1
Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 18:00
af LillGuy
Hæ, ég er að spá í að kaupa nýja tölvukassa.. þetta er ekki server, bara leikjatölvu! ég vil fá kassa sem er með mikið Airflow (Loftstreymir)
mér líst mjög vel á Thermaltake Armor kassinn 17.900kr
http://www.tolvutaekni.is/product_info. ... ts_id=1066en ef þið hafið einhverja betri endilega linkið, má kosta mestalagi
25 þúsundTakk kærlega
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 18:49
af Matti21
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=4176Færð ekki betri kassa undir 25K. Færð ekki marga betri kassa en þennan yfir höfuð :/
Fíla ekki kassa með einhverjum custom 200mm+ viftum. Svo sem allt í lagi ef þú býrð einhversstaðar þar sem auðvelt er að redda sér replacement en hvað gerirðu hérna heima ef svona gæi bilar hjá þér?
Óþarfa vesen finnst mér. Ég held mig við standard hluti.
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 19:10
af KermitTheFrog
Sammála með Cosmos kassann
Er sjálfur með CoolerMaster Centurion 5 og það streymir vel í gegnum hann
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 20:04
af jonsig
Hvaða eyðsla er í gangi ? kreppa ? að mínu mati ættiru bara að kaupa psu lausan ,, hrikalega ódýran kassa , og taka svo bara dósaborinn á hliðina á tölvunni og fitta (1500kr)120mm viftu á hliðina(LED kanski , það styttist óðum í GAY-pride allavegana eru stelpur ekki að falla fyrir þessu) ....og festa svo með maskínuskrúfum og róm, það hlýtur að vera no prob að mixa einhverja hlíf yfir , annars er bara töff að hafa enga hlíf nema litlir krakkar eru að pota í tölvukassan, en á kosturinn við enga hlíf er já ,, töff svo er hægt að troða bönunum í viftuna eða einhverri hollustu og búa til ávaxta boost meðan þú ert að horfa á derrik í tölvunni
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 20:16
af vesley
bíddu þangað til í desember.. í augnablikinu er eftirspurn á rafmagnsvörum að lækka og þá mun verð lækka og svo eru að koma jól og þá koma örugglega eitthverjar útsölur .
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 21:21
af halldorjonz
Sammála hinum ekki alveg beint besti tíminn til að spreða, auk þess.. Afhverju þarftu dýrari kassa en 10k? Færð gott og flott fyrir svoleiðis..
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 21:24
af jonsig
Bíddu hvað varð um kreppu hugmyndina mína ?! það hefur renyst mér vel að custum gera tölvukassa
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 21:31
af vesley
ég er nú sjálfur að fara að gera 2 auka viftugöt á tölvuna eitt að framan til að fá meira flæði inn .. og annað ofan á til að koma hitanum útúr toppnum þar sem hitinn leitar upp.
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 21:33
af jonsig
já þetta tölvudrasl er orðið svo háð endalausum viftum , fyllist þetta ekki allt af ryki hjá þér á no-time ?
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 21:38
af vesley
nei nei maður á ekkert að hafa áhyggjur af því bara rykhreinsa þær vel með loftrþrýstibrúsa eða loftpressu.. svo er alltaf hægt að ryksuga þær,, það virkar ef maður gerir það rétt til að forðast stöðurafmagn
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 21:51
af Gúrú
vesley skrifaði:nei nei maður á ekkert að hafa áhyggjur af því bara rykhreinsa þær vel með loftrþrýstibrúsa eða loftpressu.. svo er alltaf hægt að ryksuga þær,, það virkar ef maður gerir það rétt til að forðast stöðurafmagn
Ekki gleyma að láta 2 eyrnapinna á milli í hverri viftu til að skemma ekki legurnar
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 21:54
af jonsig
sniðugt þegar menn eru að nota þrýstiloft úr kút , til að þrýfa tölvurnar sínar og kúturinn fullur af vatni eða mettaðir af raka
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 22:00
af vesley
Gúrú skrifaði:vesley skrifaði:nei nei maður á ekkert að hafa áhyggjur af því bara rykhreinsa þær vel með loftrþrýstibrúsa eða loftpressu.. svo er alltaf hægt að ryksuga þær,, það virkar ef maður gerir það rétt til að forðast stöðurafmagn
Ekki gleyma að láta 2 eyrnapinna á milli í hverri viftu til að skemma ekki legurnar
geri það líka alltaf
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 22:07
af LillGuy
já, svo þið segið það
en ég held nú eiginlega að það myndi kosta meira á jólunum!
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 22:08
af Gets
jonsig skrifaði:sniðugt þegar menn eru að nota þrýstiloft úr kút , til að þrýfa tölvurnar sínar og kúturinn fullur af vatni eða mettaðir af raka
Talarðu þá af reinslu ? hefurðu lent í því að kaupa þrýstiloftsbrúsa í þeim stærðarflokki sem ætlaður er til að blása ryk innan úr tölvukössum, sem að úðaði hreinlega raka ?
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 22:11
af jonsig
ég meinti nú reyndar þrýstikút, þjappað með mótor
Re: Val á tölvukassa
Sent: Þri 18. Nóv 2008 22:16
af Gets
Já þú meinar handpumpaðan skil þig núna