Síða 1 af 1

Thermaltake Xaser III ál eða stál

Sent: Lau 01. Nóv 2003 17:05
af iStorm
Sælir

Eru menn sem eiga svona kassa til í að segja frá sinni reynslu af þeim.
Ég er mikið að spá í álkassann en er hann eins góður og stál, glamrar í honum eða einhvað álika. Ég var að skoða þetta niðrí bt þessir kassar eru komnir á nokkuð gott verð þar.

með fyrirfram þökk
iStorm

Sent: Lau 01. Nóv 2003 17:12
af aRnor`
Ég á stykki svona í stáli og hann á það ekki til að nötra eða glamra neitt.
Ekkert að stálinu nema þyngdin og náttúrulega svoldið þæginlegt að hafa
hurðina að framan svoldið masasífa :D

Sent: Sun 02. Nóv 2003 01:30
af gnarr
það er ekki að ástæðulausu að álkassarnir eru dýrari en stál... ál kassarnir leiða hita mun betur, og eru þessvegna "kaldari". annars er oft sma´hávaði í þeim.

Sent: Sun 02. Nóv 2003 02:11
af Arnar
Ert þú semsagt að segja að álkassarnir séu dýrari VEGNA að þeir leiði betur hita?

Gæti það ekki stafað af því að ál er bara dýrara en stál?

Sent: Sun 02. Nóv 2003 02:34
af gnarr
haha.. já ;) það er ástæaðn fyrir því að þeir eru dýrari. illa orðað hjá mér. en ál er samt notað í kassa vegna þess að það virkar eins og stórt heatsink. anyone ever seen að steel heatsink ? :8)

Sent: Sun 02. Nóv 2003 02:35
af aRnor`
Ég hafði nú getið mér þess til að munurinn væri sá að álið er mikið léttara en stálið :shock:

Sent: Sun 02. Nóv 2003 02:38
af gnarr
það er náttúrulega auka kostur.

Sent: Sun 02. Nóv 2003 02:40
af ICM
þymgdin er eina ástæðan sem ég myndi velja ál, það munar ekki svo miklu með kælingunni :)

Sent: Sun 02. Nóv 2003 02:44
af aRnor`
Ég hefði tekið ál kassa. Fékk stálið bara á sóðalega góðum díl.

Sent: Sun 02. Nóv 2003 09:50
af iStorm
Ertu menn þá að mæla frekar með ál kassanum þó að það muni heirast
einhvað meira í honum, það væru gamann að heira í einhverjum á
svona kassa kassa :D

Sent: Sun 02. Nóv 2003 11:48
af sveinn Rúnarr
sælir ég á einn ál kassa og hann er að virka skröltir ekki neitt
og hann er altaf ísss kaldur ég fékk hann fyrir 2 árum og þá var hann dýr
ég veit ekki hvað svona kassi kostar í dag. hafa þeir ekki verið að lækka

Sent: Sun 02. Nóv 2003 11:55
af Pandemic
Seinast þegar ég checkaði kostuðu ál kassarnir 19þúsund og stál 21 þús

Sent: Sun 02. Nóv 2003 12:07
af sveinn Rúnarr
þegar ég fékk minn kassa þá vara hann dýrari vegna þess að hann er með chrome framhlið. ég gat líka feingið aðra ál kassa ódýrari enn mér fanst þessi flottari