Síða 1 af 1
Asetek Waterchill = Já
Sent: Lau 25. Okt 2003 03:26
af Bendill
Jæja, ég komst loksins í hóp hinna vatnskældu!
Ég sá á heimasíðu Task.is að þeir voru farnir að selja Asetek Waterchill settið, þannig að ég ákvað að skella mér á það þar sem það hafði verið að fá glimrandi dóma. Þegar ég fékk settið fór ég strax í það að gera pláss í kassanum, boraði gat fyrir 120mm viftuna í toppinn og festi vatnskassann þar. Í settinu voru tveir kubbar, einn fyrir örgjörvan og einn fyrir kubbasettið.
Ég lenti í smá hrakförum með chip-set kubbinn, hann var ekki nægilega vel skrúfaður saman þannig að hann lak, en ég leiðrétti það með sexkanti sem fylgdi með. Þegar allt var komið saman ýtti ég á power takkann en ekkert gerðist. Ég fékk hjartaáfall...
Eftir smá tíma fór ég að skoða þetta, reif öll drif úr sambandi og reyndi aftur, og viti menn! Hún þaut í gang!
Ég er núna að keyra AMD +1700XP (AXDA1700DUT3C / JIUHB 0309MPMW) á 2.2Ghz. Ég er að vonast til að ná hærra því þetta er hraðinn sem ég toppaði í á Thermaltake Volcano 11+ heatsinkinu (með Vantec Tornado 80mm skrímsli). Hitinn stendur í 35°C idle og fer mest í 39°C undir álagi.
Ég vill þakka Kára Sig. hjá Task.is fyrir að koma mér í þetta glæsilega sett, þetta er ólýsanlega vel gert kit. Allur frágangur er til fyrirmyndar og er nánast hljóðlaust (miðað við 80mm kvikindið allavega). Ég mæli eindregið með þessu setti...
Sent: Lau 25. Okt 2003 12:27
af gumol
Þetta hljómar vel, geturu komið með myndir?
...
Sent: Lau 25. Okt 2003 14:26
af DaRKSTaR
bara stórglæsilegt
er ekki hægt að bæta í þetta t.d kælingu fyrir skjákortið?
eða er þetta bara svona max 2 sett.. örrann og kubbasettið..
færi aldrei út í svona nema að geta komið þessu á nánast allt
Sent: Lau 25. Okt 2003 14:56
af Arnar
Neinei, þeir selja annan pakka með 3 sett, CPU - VGA - SHIP
Hann getur bara bætt honum við some day
Sent: Lau 25. Okt 2003 15:34
af Bendill
Ég hef alltaf möguleika á því að kæla skjákortið, en ég kaus að sleppa því, því kælingin er fín á því eins og er
Hér er mynd af skjákortinu:
Sent: Lau 25. Okt 2003 15:38
af ICM
fín eins og hún er? það virðist vera hávaði dauðans úr þessu skjákorti
Sent: Lau 25. Okt 2003 15:47
af Voffinn
IceCaveman skrifaði:fín eins og hún er? það virðist vera hávaði dauðans úr þessu skjákorti
lol...
Maður 'sér' bara næstum því hávaðan...
Sent: Lau 25. Okt 2003 15:51
af Bendill
Þetta var fyrsta OTES græjan sem Abit kom með, síðan tók Nvidia upp þetta og gerði Leaf-blowerinn fræga...
Þessi er merkilega hljóðlát þrátt fyrir útlitið, maður fer samt að heyra í henni hávaðann þegar maður er kominn með vatnskælinguna, þar sem þetta er háværasta viftan
Sent: Lau 25. Okt 2003 15:57
af Arnar
Ég keypti svona kort.. skilaði því svo daginn eftir því það heyrðist svo hátt í því.
Skipti því upp í Ti4600 kort.. borgaði smá á milli.. en phew.. heyrist miklu minna í því
Og Hvað er fsb á örranum ?
Sent: Lau 25. Okt 2003 16:00
af Bendill
gumol skrifaði:Þetta hljómar vel, geturu komið með myndir?
Ég á ekki myndavél en fæ eina lánaða í kvöld, þá skal ég skella myndunum upp
Sent: Lau 25. Okt 2003 16:03
af Bendill
Arnar skrifaði:Ég keypti svona kort.. skilaði því svo daginn eftir því það heyrðist svo hátt í því.
Skipti því upp í Ti4600 kort.. borgaði smá á milli.. en phew.. heyrist miklu minna í því
Og Hvað er fsb á örranum ?
FSB er 200Mhz og multi er 11, minnið er 2-2-2-5 og skjákortið er á 290/570
En annars hef ég verið afskaplega passífur á viftuhávaða, frá því þegar ég var með VP6 borðið og 2x 7000rpm delta 60mm skratta á örrunum. Maður svaf allavega ekki við tölvuna hehe
Sent: Lau 25. Okt 2003 16:43
af Fletch
flott, endilega sýndu okkur myndir
ertu búin að prófa klukka eitthvað hærra ?
maður hefur séð þá á netinu ná þessum 1700XP upp í ótrúlegan hraða, 2500-2700 MHz
Fletch
Sent: Lau 25. Okt 2003 16:51
af Bendill
Ég hef lítið reynt á hana með vatnskælingunni, en ég komst ekki hærra á heatsinkinu. Einnig er ég farinn að halda að minnið fari ekki hærra. Örrinn er á 1.8V sem samsvarar 1.83V þar sem borðið overvoltar aðeins, en ég á nóg eftir...
Ég hef ekki náð að fara hærra en 200Mhz, þótt ég slaki á timings á minninu. Ég komst í 200 á heatsinkinu og var bara hæst ánægður með það, en vill komast hærra á vatnskælingunni.
Ég var að spá í smá leiðangur í kvöld, sjá hvort hún vill ekki fara í allavega 2.3Ghz
Sent: Lau 25. Okt 2003 16:56
af Arnar
Vó.. 200fsb.. er það ekki miklu hraðari en venjulegur AMD2500xp?
Sem er bara 166x11
Sent: Lau 25. Okt 2003 16:56
af Bendill
Einnig eyddi ég talsverðum tíma í að finna örgjörva sem væri vænlegur til klukkunar. Ég kynnti mér merkingarnar á þeim og útlit og fór svo niður í Tölvulistann og fékk að velja einn. Ég er ekki vonsvikinn ennþá, þetta hefur verið ágætis fjárfesting fyrir 7.900kr. ...
Sent: Lau 25. Okt 2003 17:09
af Arnar
Hvað ertu að fá í 3dmark01 með þessu?
Sent: Lau 25. Okt 2003 17:25
af Bendill
Hér er mynd af örgjörvanum:
Sent: Lau 25. Okt 2003 17:30
af Bendill
Arnar skrifaði:Hvað ertu að fá í 3dmark01 með þessu?
Það hæðsta sem ég hef fengið er ~13000, ég á eftir að prófa þetta betur, hef alltaf verið í einhverju brasi með þessi test...
Sent: Lau 25. Okt 2003 17:54
af Bendill
Jæja, hérna koma SiSoft scorin...
Hér er margt sem hægt væri að bæta...
*EDIT* Ég kom vélinni í 2.3Ghz og uppfærði myndirnar
*EDIT*
Sent: Lau 25. Okt 2003 18:34
af Fletch
geturu ekki hækkað multiplier'inn svo þú þurfir ekki að fara með FSB yfir 200 ?
Fletch
Sent: Lau 25. Okt 2003 19:03
af Bendill
Fletch skrifaði:geturu ekki hækkað multiplier'inn svo þú þurfir ekki að fara með FSB yfir 200 ?
Jú ég var einmitt að því núna, fór í 11.5 á 1.93V
Ég reyndi einnig að færa fsb upp með relaxed timings (8-3-3-2.5), komst í 205, í 206 klikkaði prime95. Ég er að vonast til að hitinn hækki ekki mikið við voltahækkunina, sem hann mun væntanlega gera
En ef svo fer, þá get ég vonandi farið í 2.4
(legg áherslu á vonandi)
*EDIT* er að keyra hana á 200x11.5 núna*EDIT*
:)
Sent: Lau 25. Okt 2003 21:19
af DaRKSTaR
liggurvið að ég heyri hávaðann frá skjákortinu allaleið upp á skaga
hrikaleg vifta á þessu.. hélt að þetta væri fx 5900 ultra kortið þegar ég sá viftuna á þessu..
Sent: Lau 25. Okt 2003 23:06
af Bendill
Sent: Lau 25. Okt 2003 23:10
af Fletch
flott
stendur dælan á einhverjum gúmmi hosum ? ef ekki myndi ég setja eittvað undir hana til að minnka víbríng...
hvernig er hávaðin í þessu ?
Fletch
Sent: Sun 26. Okt 2003 00:56
af Bendill
Fletch skrifaði:flott
stendur dælan á einhverjum gúmmi hosum ? ef ekki myndi ég setja eittvað undir hana til að minnka víbríng...
hvernig er hávaðin í þessu ?
Ég er ánægður með hvað heyrist lágt í þessu, það sem heyrist mest í er skjákortið, og það er frekar erfitt að greina á milli.
Eftir stutta prófun í dag er ég búinn að komast að því að 2300Mhz er no-go, aðallega vegna þess að prime95 failar á "blend" torture testinu, nær kannski 20 mín og svo kemur error. Einnig er ég ekki að sætta mig við 3dmark2001se scorið sem ég er að fá, ég fékk 11040 í dag á 2.2Ghz...
*EDIT* Og já, það eru gúmmí sogskálar undir dælunni *EDIT*