Síða 1 af 1

Hvaða Zalman viftu ?

Sent: Fös 17. Okt 2003 00:24
af Saejicool
Núna er ég að fara að bæta aðeins við tölvuna, fá mér nýja kælingu og svoleiðis.
En ég var að skoða task.is og þar eru 3 Zalman örgjörvaviftur.
Zalman CNPS6000-Cu
Zalman CNPS7000A-ALCU
Zalman CNPS7000A-Cu
Hverja af þessum 3 á ég að velja mér ?
Hef heyrt mjög góða hluti um 7000A-CU (nr3) en vill bara fá ábendingar hér líka. :?

Svo var ég líka að spá hvernig kassaviftu(r) maður ætti að fá sér með þessu?
Er Zalman þá málið líka ? :lol:

Kv. Sæþór / tiro^

Sent: Fös 17. Okt 2003 02:07
af Arnar
Ég er með nr 3.. hún er fín.
Ég ætla samt að fá mér vatnskælingu um mánaðarmótin til að geta oc smá :)

Sent: Fös 17. Okt 2003 02:24
af Fox
Arnar skrifaði:Ég er með nr 3.. hún er fín.
Ég ætla samt að fá mér vatnskælingu um mánaðarmótin til að geta oc smá :)


Veistu, ef þú myndir kaupa þér örgjörva á ebay, frekar en hérna á íslandi, þá gætir þú fengið þér mun dýrari örgjörfa, og þar af leiðandi þarftu ekki að eiða tíma og peningum í kælingu til þess að overclocka.

viftur........

Sent: Fös 17. Okt 2003 03:18
af DaRKSTaR
fyrsta er nokkuð flott verð ég að segja..

en ég myndi taka viftu nr2 umframm nr3 útaf þyngdinni.. hún er ca 300gr léttari..

já og þessi áhugi á vatnskælingum er ég ekki alveg að skilja.. þetta er ljótt...

Sent: Fös 17. Okt 2003 03:39
af kemiztry
Ég er með eins og númer 3 og er hún að virka mjög vel

Sent: Fös 17. Okt 2003 04:10
af halanegri
Ég er með nr. 3, hún er léttari og ódýrari en nr. 2 (báðar eru yfir hámarksþyng sem AMD/Intel mæla með) og hún kælir vel. Það heyrist varla í henni í Silent Mode. Ekki taka nr. 1, það er mikið eldri kæling.

Sent: Fös 17. Okt 2003 15:31
af Arnar
Fox, ég ætla að reyna að ná honum upp í 2300-2400mhz.

Svo finnst mér vatnskælingar töff :)

Sent: Fös 17. Okt 2003 17:09
af GuðjónR
halanegri skrifaði:Ég er með nr. 3, hún er léttari og ódýrari en nr. 2 (báðar eru yfir hámarksþyng sem AMD/Intel mæla með) og hún kælir vel. Það heyrist varla í henni í Silent Mode. Ekki taka nr. 1, það er mikið eldri kæling.


RANGT...nr3 er 773gr á móti nr2 sem er 445 grömm.

Ég er bæði með viftu nr3 og nr1 báðar virka rosalega vel.
Þú færð aðeins betri hitaleiðni með viftu nr3 en nr2 þar sem nr3 er engöngu úr kopar.

Sent: Fös 17. Okt 2003 18:58
af halanegri
Já, sry, ruglaðist á nr. 2 og 3, ég er með nr. 2. :lol:

Sent: Fös 24. Okt 2003 21:43
af Saejicool
Nr.3 er greinilega að fá góða dóma, fæ mér hana líklega.
Kaupi þetta eftir mánaðrmótin.

Hvernig er með tollinn

Sent: Mið 29. Okt 2003 11:55
af keiZer
Þarf ekki að borga toll af því sem er keypt á e-bay, ég keypti mér leik á netinu og það varð að lokum dýrasti leikur sé ég hef keypt (2.100 sem tollurinn smurði á þetta).

Fox skrifaði:
Arnar skrifaði:Ég er með nr 3.. hún er fín.
Ég ætla samt að fá mér vatnskælingu um mánaðarmótin til að geta oc smá :)


Veistu, ef þú myndir kaupa þér örgjörva á ebay, frekar en hérna á íslandi, þá gætir þú fengið þér mun dýrari örgjörfa, og þar af leiðandi þarftu ekki að eiða tíma og peningum í kælingu til þess að overclocka.

Sent: Mið 29. Okt 2003 12:56
af Fox
Nei, það þarf hinsvegar að borga VAT af þessu.
Hann nemur margfeldið 1.24 af vöruverðinu.

P4C800-E + 3Ghz PIV 800 = $619.00
VAT af $619.00 er : $148

$179.00 + $295.00


Svo verðið er komið í $767, eða 61.360 Kr.
Oná þetta kemur sendingarkostnaður sem er kringum 3000Kr

Svo við skulum miða við 65.000 fyrir örrann + móðurborð.

Hérna heima kostar þetta:
P4C800 = 24.985 Kr
PIV 3.0 Ghz 800 = 49.400

Þetta er komið upp í : 74.385

Þú ert að spara: 9000 Kr fyrir 2 vikna bið.


Ef þú reyknar bara örgjörfann, þá sparar þú rúmar 15.000 Kr ef þú kaupir hann af ebay.


Ég var að fara eftur gegnum eBay til að sjá hvort það væri hægt að fá þennan pakka hagstæðari.
Ef þú kaupir örrann og móðurborð í sitthvoru lagi frá sitthvorn gaurnum, kostar það: 607,76 með VAT og sendingarkostnaði. Það eru rúmar 48.620 Kr.

Móðurborð + Örgjörfi: PIV 3.0Ghz 800 \\ P4C800

Ebay: 48.620 Kr
Computer.is: 74.385

--- Sparnaður: 25.765

Það tekur flesta undir 20 ára , heila viku að vinna sér inn fyrir þessum peningum. Viljiði virkilega henda þeim í tölvubúðir hérna heima, bara vegna þess að þið nennið ekki að bíða eftir draslinu ykkar?

Sent: Mið 29. Okt 2003 12:58
af Fox
Gott að bæta við, að það borgar sig ekki að kaupa ódýrt dót af netinu, þar sem sendingarkostnaður er oft sá sami og vöruverðið.

2000 Kr tölvuleikur:
500Kr í Vat.
500 - 1000Kr í sendingarkostnað

Samtals: 3500 KR.

Afhverju borga 3500 þegar það er til FTP :P

Sent: Mið 29. Okt 2003 14:22
af gumol
10% tollur held ég

Sent: Mið 29. Okt 2003 14:43
af icemob
Fox!

Hættu þessu rugli með VAT og notaðu VSK í staðinn, það gætu einhverjir ruglað þessu við erlenda skatta t.d. í UK.

Svo er formúlan þegar þú verslar að utan svona:

verð vöru
+ Sendingarkostnaður
+tollur/vörugjöld(ef það á við)
+VSK(margfeldið 1.245)
+tollskýrslugerð(ef það á við)
=Endanlegt verð vöru komið til kaupanda.

Það er alltaf reiknaður VSK á vöruverð með sendingarkostnaði og tollum.

Sent: Mið 29. Okt 2003 16:47
af OverClocker
Þetta er rétt hjá Icemob..

Ég hef oft pantað frá ebay, og það er eitt sem má ekki gleyma.. að það er engu að treysta, hvorki afhendingartíma eða verði. Þú heldur að þú sért að borga extra fyrir að þetta fari með venjulegum pósti eða fedex.. en þetta fer oftast með skipi sem er ódýrast fyrir seljandann en tekur margar vikur að koma til þín.

Þannig "græða" seljendur auka pening... :evil:

Ég myndi ekki fá mér Flower vifturnar !!

Sent: Mán 24. Nóv 2003 14:08
af MJJ
Þessar flower viftur hafa verið að brenna yfir örgjörva, allt í einu hætta bara vifturnar að virka, margir sem lennt hafa í þessu, ég er með zalman eitthvað sem sýgur loftið upp frá örranum og ég er bara nokkuð sáttur með hana silent og góð kæling!!

Sent: Mán 24. Nóv 2003 14:13
af gumol
gott að vera með Intel og geta sofið rólegur *pot í voffann*

Sent: Mán 24. Nóv 2003 14:38
af Voffinn
Allt í lagi, serverinn krassar þá bara, ég er búin að skipta um viftu á gamernum :8)