Síða 1 af 1

Þessi gæji er snillingur "Heat-sink howto"

Sent: Lau 11. Okt 2003 10:23
af elv
Hummm maður ætti kannski að reyna þetta http://home.insightbb.com/~danzigrules/ ... arhead.htm

Sent: Lau 11. Okt 2003 19:57
af Hlynzi
Þetta er kúl, spurning um að fá að gera svona í fínsmíðinni í iðnskólanum rvk.

Svo er spurning með að smíða sér blokk, ef maður þekkir einhvern sem getur tekið úr kopar kubbi, þá myndi ég hafa þessa flower byggingu og vatn rennandi undir.

Sent: Lau 11. Okt 2003 20:16
af elv
Vatnsblokk þarf ekkert að ver flókin, er búin að smíða þrjár

Sent: Lau 11. Okt 2003 22:10
af Pandemic
Ég heimta að það komi tutorial hvernig þú gerir vassblokk :twisted:

Sent: Lau 11. Okt 2003 22:51
af elv
Hmmmm þetta fer mest ef efninu sem þú ætlar að nota.
Það er hægt að gera fína blokk með gos/bjórdós!! ef menn vilja vera ekta ghetto

Sent: Sun 12. Okt 2003 03:02
af J0ssari
1. 2 þykkir kopar bútar
2. boltar þá saman, borar 2 göt fyrir slöngufestingar á plötuna sem snýr upp.
3. Útbýrð festingu. Ef þú átt mobo með götum í kringum socket þá mæliru út fyrir þeim og borar.
4. tekur bútana í sundur og sverfur í þá hæfilega rás fyrir vatnið.
5. Boltar blokkina saman og þéttir allt með sílikoni.
6. Boltar/festir anskotann við mobo/kassan.


Þarft ekki endilega að sverfa rásina fyrir vatnið, auðveldara að hafa hliðar á blokkinni. Bora þá kannski nokkrar grunnar holur í plötuna sem snertir cpu, til að auka hita upptöku.
Mikilvægast er náttúrulega að þétta allt, og að þéttingin veikist ekki við smá hita breytingar =)

Ekki það að ég hafi smíðað mér vatsnblokk :wink: Andskoti væri gaman að hafa aðgang að almennilegu verkstæði til að smíða svona.


Fann þessa síðu eftir að ég skrifaði þennan skít fyrir ofan :8) :
http://www.zerofanzone.co.uk/default.asp
Djöfull hvað þetta er flott :!: Verður ekki aftur snúið núna.

Sent: Sun 12. Okt 2003 08:05
af elv
Ef þið viljið sjá góðar en einfaldar blokkir, leitið að gæja sem kallar sig "Rotor" á procooling.com og síðuna hans.





Handbor er alveg nóg

Sent: Sun 12. Okt 2003 10:16
af Hlynzi
Ég kíkti á linkinn hans Jossara. Gaurinn er soldið vitlaus í harðadiskakælingum, mesti hitinn fer yfirleitt út á hliðunum.

En ég væri alveg til í að smíða kælingu í serverinn, hafa hann alveg hljóðlausan, og kæla harða diskinn betur. (Þið vitið að þeir endast mun betur í góðri kælingu, það á við um alla hdd)

Hvar finn ég svo kopar kubba ? (eða hreina koparkubba)
Ef maður fær þetta á góðu verði þá skelli ég mér í þetta, ég er auk þess búinn að hugsa mér að hafa þetta heatsink á þann veg að bæði vatnið og svo "flower" bygging (eða beint upp bara) með helling af koparplötum með í þessu.
En hvernig er nú með PSU að kæla það ? bara hafa gömlu viftuna í eða setja eitthvað betra ? (Það heyrist svo lítið í þeim) ég er núna með 3 viftur í kassanum. Eina 5000 rpm á örgjörvanum (sem er suð...) og svo PSU, og skjákortsviftu. Svo myndi maður búa til blokkir á kubbasettið, ásamt því að raðtengja vatnsrásina í gegnum allt er það ekki ?

Sent: Sun 12. Okt 2003 10:59
af elv
Eins og ég skil að þú ætlir að reyna að gera blokkia þá þarftu ansi öfluga dælu.
Þið fáið kopar(eir) í Sindra 5000 og eitthvað meterinn.

Sent: Sun 12. Okt 2003 12:37
af J0ssari
Harðir diskar þurfa ekki það mikla kælingu, ég er með 80mm viftu á 7v sem blæs yfir þá og þeir verða ekki volgir. Ef hún er ekki þá verða allavega WDse diskarir drullu heitir ..~50°C

Það er satt með að kæla HDs hellst hliðunum... Toppurinn er bara "lok" sem er þéttað með gúmmí, rétt skrúfað við. Jafnvel skárra að festa blokkina undir ef maður vill ekki fórna 5.25" rekkum , þar leiðir allavega hita frá mótornum almennilega.

Sent: Sun 12. Okt 2003 12:41
af elv
Hérna eru tvær blokkir sem er auðvelt að gera ef þið hafið áhuga á.


http://overclockers.com/tips980/
Þessi kostar skítt og kanil og er mjög auðvelt að gera



http://overclockers.com/tips997/
Þessi þarnast aðeins meiri vinnu of efni er er topp blokk

Sent: Sun 12. Okt 2003 13:47
af J0ssari
Eins gott að límið gefi sig ekki :? 0.2mm(sirca?) þykkur botn á dós, getur varla gripið vel.
Mynd
Mynd
Mynd

Sent: Sun 12. Okt 2003 13:49
af elv
Það er nú alve ótrulegt hvað þetta heldur, þurfti smá afl með skrúfjárni til að losa þetta af

Sent: Sun 12. Okt 2003 13:55
af J0ssari
Smíðaði hátalara úr svona dósarbotni á föstudaginn, stútaði einum hörðum diski fyrir seglana, stútaði tússpenna og vafði spólu á hann, festi dósarbotnin á tússpennan. Setti 3 nagla á segulinn, tússin/m spólunni uppá miðju naglann. Kom alveg massa sound úr þessu :D

Allir hinir aumingjarnir með máttlausar lausnir, kröftugir seglar í HDs.

Smá tímaverkefni í Raf 436 :wink:

Sent: Sun 12. Okt 2003 13:57
af elv
Myndi myndir myndir myndir

Sent: Sun 12. Okt 2003 23:32
af Damien
Hehe sáuð þið að heatsinkið sem gaurinn bjó til er 6 pund! :shock:

Sent: Sun 12. Okt 2003 23:54
af gumol
Sem er hvað mörg kg?

Sent: Mán 13. Okt 2003 00:24
af gnarr
3kg

Sent: Mán 13. Okt 2003 00:32
af ICM
allpurposesoftware.com
kíktu á þessa síðu, finndu universal converter, mjög henntugt ókeypis forrit, breytir á milli nær allra mælieininga.

Sent: Mán 13. Okt 2003 08:22
af gumol
thx

Sent: Þri 14. Okt 2003 20:31
af RadoN
3kg.. það er klikkun :lol:

Sent: Þri 14. Okt 2003 21:58
af J0ssari
Ég nota þessa síðu til að breyta mælieiningum...:
http://www.onlineconversion.com/

Sent: Þri 14. Okt 2003 22:19
af ICM
jossari þessi síða sem þú bendir á virðist vera betri kostur, bara ef hún væri ekki með svona marga undirflokka, það þarf að leita af því sem maður ætlar að breyta :) en ekki nógu sniðugt ef það verða truflanir á netinu