Síða 1 af 1
Að yfirklukka
Sent: Mán 21. Jan 2008 20:54
af -Oli-
Hef verið að pæla mikið í þessu að prófa þetta og er búin að lesa mig til um smá. Ef ég myndi byrja á þessu myndi ég trúlega kaupa mér nýjan og betri aflgjafa og betri kælingu
en er einhvað mál að overclocak E6600 og er þetta nógu gott til að höndla þetta álag á hann?
Örri Intel Core Duo E6600
Móðurborð MSI Platinum P968
4GB vinnsluminni - Ocz 1Gb*2 og einhvað annað 1024Mb*2 667Mzh
Skjákort 7600GT
ef ekki, hvað mæli þið með?
Sent: Mán 21. Jan 2008 21:28
af Dazy crazy
Allavega ef þú ert með 2 Ocz minni sem eru 800Mhz og hin einhver á 677 Mhz þá keyra 800 minnin á 677.
það gæti
held ég hindrað þig í yfirklukkuninni
ég veit ekki hvort ég má það en ég ætla að benda þér á link hér á vaktinni
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=16778
Sent: Mán 21. Jan 2008 22:01
af -Oli-
ok, þa´veit ég það
Sent: Mán 21. Jan 2008 22:07
af Dazy crazy
hvernig psu ertu með og maður segir: ég er búinn að lesa mér til.
Sent: Mán 21. Jan 2008 22:20
af -Oli-
ertu ekki að meina aflgjafa? (ný komin inn í tölvuheimin
)
en þá mundi ég halda að ég er með 350W og ef ég færi út í þetta þá myndi ég kaupa mér um 550W eða 600W
Sent: Mán 21. Jan 2008 23:53
af Dazy crazy
550-600w er held ég meira en nóg í allt sem þú getur sett í tölvuna þína innan eðlilegra marka, nýtt skjákort harðir diskar og all bara.
Sent: Þri 22. Jan 2008 12:53
af ÓmarSmith
í guðana bænum fáðu e-n með kunnáttu á þessu til að fara með þér í gegnum þetta áður en þú grillar móðurborðið minnin eða örrann
Það er fínt að fá spot on hjálp í fyrsta skiptið svo maður fatti hvað maður er að gera. Svo getur maður fiktað sig áfram.
Sent: Þri 22. Jan 2008 13:34
af -Oli-
já, ég held ég sé ekki að fara gera þetta. Ætla bara að halda mig innan ákveðna marka
Sent: Þri 22. Jan 2008 21:37
af Selurinn
Byrjaðu einungis á því að hækka FSB, og ef þú villt fara lengra en það, þá skalltu fá einhverja hjálp.
Lestu þetta ef þú hefur mikinn áhuga á þessu:
http://www.tomshardware.co.uk/forum/240 ... uals-guide
Sent: Þri 22. Jan 2008 22:29
af -Oli-
þarf maður ekki að stilla einhva geggt mikið áður en þú byrjar, t.d.votlin, fyrir örgjörvan og einhvað í bios,
allavega sá það þegar ég var að skoða sko
Sent: Mið 23. Jan 2008 00:44
af Dazy crazy
Ekki bara stilla fsp, það verður að gera pci/agp lock ef þú vilt ekki eyðileggja sata diska eða skjákort.
Mæli með því að þú fáir hjálp.
Mér tókst reyndar að fikta ansi mikið og yfirklukka úr 2,6 í 3,05 og þá stoppaði minnið mig (móðurborðið býður ekki upp á að breyta timings) en ég held að það hafi kannski verið pínu heppni að ég grillaði ekki hamborgarann minn á móðurborðinu eftir það