Síða 1 af 1

Kælikrem á P4 2.8GHz/800.

Sent: Mið 24. Sep 2003 08:12
af emmi
Hvaða kælikrem mælið þið með? Ég hélt að Arctic Silver 3 væri besta stuffið sem er til á landinu en svo var ég að heyra að það leiddi rafmagn sem væri ekki gott? Hvað segið þið um það? :)

Kveðja.

Sent: Mið 24. Sep 2003 12:21
af tms
Ég hef AS3 á mínum AMD XP. Svoldið sull í kringum core en það virðist vera allt í lagi. Og já, Artic silver leiðir rafmagn, sem er ekkert endilega vont. Bara passa sig á að sulla ekki á móurborð eða neitt svoleisðis ;)

Sent: Fös 26. Sep 2003 23:34
af Caaine
Hæ,

Artic Silver Ceramique er betra og einnig Shin Etsu G751. Hinsvegar færðu hvorugt hérlendis.

Sent: Lau 27. Sep 2003 01:11
af halanegri
Ég er með Arctic Silver 3 Premium á mínum XP 2800+ og það er fínt.

Sent: Lau 27. Sep 2003 19:38
af Damien
Ég keypti mér Artic Silver 3 fyrir P4 2.4 800FSB örrann minn, (á eftir að setja það á).
Þeir segja að þetta sé úrvals hitaleiðandi krem, ef ekki eitt það besta.

Pæling: ég var að skoða örrann minn og í neðra horninu á járnplötunni er lítið gat.
Má setja krem yfir gatið? Eða þarf ég að passa að það gerist ekki?

Sent: Lau 27. Sep 2003 19:57
af kemiztry
er maður að græða eitthvað á þessum kælikremum?

Sent: Lau 27. Sep 2003 20:02
af elv
Damien skrifaði:Pæling: ég var að skoða örrann minn og í neðra horninu á járnplötunni er lítið gat.
Má setja krem yfir gatið? Eða þarf ég að passa að það gerist ekki?




Á ekki að skipta máli, undir járnplötunni er core eins og á AMD.
Menn eru að græða 2-5C á milli kælikrema, stundum meira