Moddað vegna nauðsynjar


Höfundur
Meso
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Reputation: 2
Staðsetning: Ak City
Staða: Ótengdur

Moddað vegna nauðsynjar

Pósturaf Meso » Lau 22. Sep 2007 10:44

Sælir Vaktverjar

Ég var nýlega að uppfæra tölvuna mína og hef ég aldrei lent í eins miklu veseni við uppsetningu á nýrri tölvu og neyddi það mig til að "modda" kassann minn,
þannig að ég ákvað að deila þessu með ykkur.

Það sem ég skellti mér á:
MSI P35 Platinum
Intel Q6600
MSI Nvidia 8600GTS viftulaust
2x 1 GB DDR2 800

Skellti þessu svo í gamla Lian-Li PC-V1200 kassan minn og notaði gömlu drifin og Silenx 400w aflgjafann minn áfram.

En þegar kom að því að setja þetta upp lenti ég í smá vandræðum, vélin neitaði að boota sér upp almennilega,
komst inn í bios en ekki mikið lengra en það annars slökkti hún á sér,
taldi ég í fyrstu að aflgjafinn væri ekki nægilega góður þar sem á móðurborðinu voru 24 og 8 pinna tengi en á aflgjafanum var einungis 20 og 4 pinna,
svo ég skellti mér á Gigabyte Odin Pro 800w, en það leysti engann vanda og komst ég að þeirri niðurstöðu að ég væri sauður
því heatsinkið á örgjörvanum var ekki nægilega þétt uppvið hann þrátt fyrir að allar smellurnar væru alveg vel fastar.
Victory at last, tölvan kveikir á sér og ég set up windows og allt í góðu gengi, fyrir utan það að nýji aflgjafinn er lengri en sá gamli
og passar ekki almennilega í kassann og hangir hálfur út úr kassanum og einnig finnst mér hitastigið á örgjörvanum full hátt eða um 46°C idle.

Ég les milljón gagnrýni um kælingar og kemst að þeirri niðurstöðu að ein besta loftkæling sem ég fæ er
Thermalright ultra 120 og til allrar hamingju fæst hún hér heima hjá Kísildal svo ég þarf ekki að vesenast að panta að utan,
bætti ég svo við 2x Sharkoon Silent Shark 120mm viftum (sem eru alls ekki silent nema maður skrúfi þær niður í 1000rpm, en þær blása vel)

En að sjálfsögðu passar kælingin ekki í kassan minn góða, það er veggur á milli aflgjafa og móðurborðs sem er fyrir, svo eitthvað þurfti ég að gera.

Hér er kassinn í upprunalegri mynd áður en hafist er handa:
Mynd

Svo heppilega vill til að einn félagi minn er blikksmiður og hjálpaði hann mér í þessum breytingum.
Þurfti að skera vegginn á milli móðurborðs og aflgjafa rýmis:
Mynd

Hér er kassinn eftir að skorið hefur verið úr, tók ég annann HD rack'inn og setti hann þar sem floppy drifið var:
Mynd

En þá þurfti að styrkja móðurborðs festinguna því þetta var frekar "loosy goosey":
Mynd

Hér má sjá afraksturinn, bara vonandi passar allt heila klabbið í:
Mynd

Litlu mátti muna, heatsinkið snertir ekki aflgjafann, en það er ekki meira en 1mm á milli:
Mynd

Hér má svo sjá allt heila klabbið komið í, svolítið snúru mess ég veit:
Mynd

Og að lokum ein mynd af kassanum í allri sinni dýrð, reyndar er ég búinn að taka þetta gamla Soundblaster hljóðkort úr þar sem það hefur ekki verið notað
síðan ég fékk mér Focusrite Saffire LE og setti ég Zalman viftustýringu í staðinn (sem ég ætla að modda, allt of mikið af helv. ljósum og drasli):
Mynd

Hitastigið hjá mér lækkaði töluvert við að uppfæra kælinguna hjá mér eða niður í 32-4°C á örgjörvanum í idle,
einnig setti ég 120mm viftu á skjákortið og fór það frá 70°C+ niður í 40°C,
þrátt fyrir að vera með 4 viftur í kassanum plús viftuna í aflgjafanum er hún frekar hljóðlát og það eina sem heyrist eitthvað að viti í eru hörðu diskarnir,
sem fer frekar í taugarnar á mér þar sem ég nota vélina í hljóðvinnslu og upptökur, ef einhver hefur einhverja töfralausn á þessu vandamáli þá endilega tjá sig.

Öll uppbyggileg gagnrýni og komment vel þegin.




TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf TechHead » Lau 22. Sep 2007 13:07

http://www.antec.com/us/productDetails.php?ProdID=81820

Voila! Með honum eru öll þín kælingar og hljóð vandamál leyst :wink:




Höfundur
Meso
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Reputation: 2
Staðsetning: Ak City
Staða: Ótengdur

Pósturaf Meso » Lau 22. Sep 2007 13:20

TechHead skrifaði:http://www.antec.com/us/productDetails.php?ProdID=81820

Voila! Með honum eru öll þín kælingar og hljóð vandamál leyst :wink:


Takk fyrir þetta, en öll kælingarvandamál eru úr sögunni, bara smá hávaði úr hörðu diskunum að pirra mig,
svo var "budgetið" mitt búið svo ekki var hægt að ráðast í það að kaupa nýjan kassa,
en ef út í það hefði farið hefði ég líklega keypt þennann.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Lau 22. Sep 2007 18:07

Trúi því ekki að engin sé búinn að segja þetta...

Flottar hendur :)




Höfundur
Meso
has spoken...
Póstar: 199
Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
Reputation: 2
Staðsetning: Ak City
Staða: Ótengdur

Pósturaf Meso » Lau 22. Sep 2007 18:47

Pandemic skrifaði:Trúi því ekki að engin sé búinn að segja þetta...

Flottar hendur :)


Hehe, þetta eru reyndar ekki mínar hendur en ég skal koma hrósinu til skila :)



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Lau 22. Sep 2007 21:24

Varðandi diskana, ef þú ert með góða samsung diska nú þegar og hljóðið úr þeim samt að trufla þig, þá geturðu t.d. látið þá hanga á teygjum inn í kassanum, það drepur allan víbring og lækkar verulega hávaðann í þeim. Tapar á móti þó nokkuri kælingu af þeim reyndar.




Tjobbi
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 366
Skráði sig: Fös 07. Apr 2006 19:25
Reputation: 0
Staðsetning: Gbr
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Tjobbi » Mið 03. Okt 2007 20:35

Ákaflega sniðugt og hentugt Mod hjá þér!

Thumps fyrir þessu :wink:


- asus a8n-sli - amd 3700@2.7ghz - watercooled - sparkle 7800gtx - g-skill 2x1gb ddr500 cl3 - 250gb - 22" acer -