Síða 1 af 1
Setja upp vatnskælingu
Sent: Fim 20. Sep 2007 21:18
af Arkidas
Mig langaði að vita hvort einhver hér hafi reynslu af því að setja upp vatnskælingu. Mig vantar fyrst og fremst nákvæmar uppl. um hvernig á að hreinsa allt saman. Best væri ef einhver gæti haft samband við mig á MSN og sendi mér þá PM. Annars eru svör velkomin hér
Radiator:
http://www.sidewindercomputers.com/swmcqupo3xbl.html
Reservoir:
http://www.sidewindercomputers.com/swmcre1.html
CPU Block:
http://www.sidewindercomputers.com/fuexpecpubl.html
Chipset Block:
http://www.sidewindercomputers.com/dadenddchbl.html
Pump:
http://www.sidewindercomputers.com/swmcwdeddcpu.html
Tubing:
http://www.sidewindercomputers.com/ty7id11odlat.html
Sent: Fim 20. Sep 2007 23:22
af Bassi6
Þú þarft ekkert að keyra edik í gegnum þetta það er bara til að losna við kalk sem er ekki í vatninu hér, bara skola út með vatni og nota síðan eimað vatn og eitthvað efni til að hindra þörungamyndun (anti algie) Ég notaði efni sem heitir Water Wetter það eykur lika varmaleiðni vatnsins og er tæringarvörn, er notað á vatnskassa við vélar sem eru undir miklu álagi
Veit ekki hvort þetta fáist hér á landi , ég pantaði mitt frá Asetec, það verður að vera eitthvað svona sull á þessu annars fyllist allt af þörungum
enda kjörhiti fyrir þá sérstaklega ef þú ert með ljós í kassanum líka
Annars er hægt að fræðast eitthvað hér
http://forum.vapochill.com/
Sent: Fös 21. Sep 2007 11:33
af Arkidas
Er með kælivökva frá HydrX. Ég skil ekki hvernig á að hreinsa þetta. Þarf að taka allt í sundur?
Sent: Fös 21. Sep 2007 11:58
af Bassi6
ef þetta er gamalt/notað kerfi þá gætir þú þurft þess en nýtt kerfi bara skola í gegn með köldu vatni . Ég reyndi að keyra klórblöndu í gegn hjá mér þegar ég lenti í þörungaveseninu, það hafði ekkert að segja endaði með að rífa allt í sundur og þrífa kælblokkirnar og skifta út slöngunum. Það var áður en ég setti Water Wetter á dótið
Sent: Fös 21. Sep 2007 14:42
af Arkidas
Þetta er glænýtt, lét slóðir fyrir ofan. Hvernig læt ég renni í gegn? Tek ég toppana af blokkunum og þvæ þær í gegn?
Sent: Fös 21. Sep 2007 15:48
af Bassi6
Þú setur bara kerfið saman gengur frá öllu, lætur síðan dæluna dæla í gegn köldu vatni. Tappar síðan af og setur eimað vatn og HydrX á kerfið,lofttæmir og lætur ganga einhvern tíma (24) til að vera viss um að ekkert leki, síðan er bara að ræsa tölvuna, hún má ekki fara í gang meðan það er loft á kerfinu og ekki fyrr en þú ert viss um að ekkert leki!!
Sent: Fös 21. Sep 2007 19:04
af Arkidas
Getur þú útskýrt fyrir mér hvað er verið að biðja mig um að gera hér?
http://www.overclock.net/water-cooling/ ... ing-8.html
Sent: Fös 21. Sep 2007 20:16
af Bassi6
Hann er að tala um að hreinsa kalkútfellingar eða þessháttar
þú þarft ekki að pæla í því með nýjar kæliblokkir
Sent: Fös 21. Sep 2007 20:58
af Arkidas
Tók hana í sundur og þar eru kassalaga plastbútar. Á ég að taka þá úr? Þeir vilja meina að þetta plast geti komist í slönguna.