Síða 1 af 1

ON TOPIC :)

Sent: Þri 06. Mar 2007 01:57
af s1n
Jæja smá on topic hérna, í kassanum mínum skemmtilega hávært skjákort af gerð x1900, Hvað var ég að pæla í að kaupa þetta? :P Það heyrist nánast bara í henni, þeas, eina hljóðið sem pirrar mig eitthvað, næst er það sennilega raptor hd'inn, enda er ég með hljóðlátar viftur (reyndar er ég með slökkt á tveim núna, þegar ég fattaði að þær hafa nánast engin áhrif á hitann), Zalzman viftan er að gera góða hluti, heyrist ekki múkk í henni.

Og varðandi þetta með gúmmítappanna, ég er ekki búinn að fá mér svoleiðis ennþá en ég er þó með laglega brett saman flísteppi undir tölvunni,

og gera eitthvað í þessari viftu á skjákortinu.

Ps. og bara til þess að enginn spyrji, þá er ég með Ati Tray tools og er að stýra hraðanum á skjákortaskrímslisvifunni í ásættanleg hávaðamörk.

Sent: Þri 06. Mar 2007 02:16
af gnarr
þú getur sett 3rd party kælingu á kortið

Sent: Þri 06. Mar 2007 09:51
af gumol
Þú villt að þetta sé on topic?

Topic-ið sem þú valdir er: ON TOPIC. Allt sem ég segi er því on topic.

Hvernig fannst ykkur Spaugstofan á laugardaginn?

Sent: Þri 06. Mar 2007 10:10
af ManiO
gumol skrifaði:Hvernig fannst ykkur Spaugstofan á laugardaginn?


Horfir einhver enn á þá? :?

Sent: Þri 06. Mar 2007 12:16
af ÓmarSmith
HeHe..

Þú getur fjárfest í Artic Cooling kælingu á kortið sem og Zalmann viftu.

báðar kæla mjög vel og eru mjög hljóðlátar.


annars verð ég að hrósa mínu 8800gts korti því það er DEAD silent, idle og í botni.