Síða 1 af 2
Búa til vantskælingu...
Sent: Þri 30. Jan 2007 23:46
af @Arinn@
Ég og vinur minn erum að dunda okkur að búa til waterblock á örgjörva og radiator. Okkur vantar einn hlut í allt stuffi og það er 2 icm þykkar koparplötur sem eru 50x50mm á breitt og lengd fæ ég þetta einhverstaðar ?
Sent: Mið 31. Jan 2007 00:12
af zedro
Því miður er mig ekki að detta í hug hvar þetta getur fengist en mig dauðlagar að sjá mynd af essu til að skella inn nokkrum myndum
Getur prufað Gulusíðurnar undir málm....eitthvað
svo er aldrey að vita hvað 118 segjir.
Sent: Mið 31. Jan 2007 07:39
af gnarr
ég fékk svona í frirtæki uppá höfða þegar ég var að gera þetta. Minnir að það heiti málmsteypa.
Sent: Mið 31. Jan 2007 08:14
af Tappi
Endilega koma með myndir!
Sent: Mið 31. Jan 2007 09:43
af Taxi
Prufaðu Málmtækni og Sindra.
Töff að smíða waterblock sjálfur,endilega pósta myndum.
Sent: Mið 31. Jan 2007 20:51
af @Arinn@
gnarr skrifaði:ég fékk svona í frirtæki uppá höfða þegar ég var að gera þetta. Minnir að það heiti málmsteypa.
Já ég fékk svona uppí málmtækni uppá höfða hvað fekkstu þér þykkar plötur ? Ég keypti tvær 6mm þykkar koparplötur, þeir áttu ekki breiðara en 4cm svo ég lét það nægja svo skelli ég þessu saman blockin er þá um 1.2 cm þykk ? Hvað fekkst þú þykkt efnið hjá þeim ? Smelltir þú ekki tveim svona saman eins og samloku ? Hvað var þetta þykkt hjá þér ? Ég er kominn með hugmynd hvernig ég ætla að láta vatnið leka í gegn um blockina (sjá mynd) Mynduð þið hafa rásina öðruvísi ? En ég skal posta myndum og svona í skrefum
Fer að byrja á þessu og ætla að dunda mér svona við þetta
Sent: Mið 31. Jan 2007 23:28
af Viktor
Held að
S
S
S
sé málið, kæliskápa trickið
Sent: Mið 31. Jan 2007 23:42
af @Arinn@
en G leiðin ? Kalda vatnið fer beint á kjarnann í örgjörvanum og svo í hring út og í genum kæli systemið ?
Sent: Fim 01. Feb 2007 01:03
af gumol
Mesti hitinn í miðjunni, ég held að sú aðferð sé ekkert vitlaus.
Sent: Fim 01. Feb 2007 08:34
af Stutturdreki
Ég myndi halda að 'G' eða svona spiral væri betri upp á kælingu. Með 'S' leiðinni þá er vatnið hugsanlega byrjað að hitna þegar það kemur að miðjunni.
Sent: Fim 01. Feb 2007 12:57
af gnarr
við erum að tala um kopar grunn.. eitt mest leiðandi efni sem er til. Munstrið skiptir gífurlega litlu máli. G er samt ekkert vitlaus hugmynd.
Sent: Fim 01. Feb 2007 14:13
af @Arinn@
Gæti það verið í lagi að taka eina 6mm plötuna sem ég er með og bota G alveg í gegnum plötuna slípa hana svo til og taka svo 2mm koparplötu og skella undir sem snertir örgjörvann, svo tek ég hina 6mm plötuna og geri sama munstur nákvæmlega eins en bora ekki alveg alla leið í gegn en bora náttúrulega í gegn þar sem vatnið kemur inn og út ? Var að spá á þessu vegna þess að ég er bara með 2 6mm plötur sem eru 1.2 cm á þykkt þá gæti meira vatn fengið að leika um og kaldavatnið kemst ennþá nær örgjörvanum ? Er þetta bull eða ? Hvernig gerðir þú þetta t.d gnarr ? Fletch ? einhver svona kælingar meistari koma svo fer að starta þessu
Sent: Fim 01. Feb 2007 17:09
af @Arinn@
? Veit enginn ?
Sent: Fim 01. Feb 2007 18:46
af elv
@Arinn@ skrifaði:Gæti það verið í lagi að taka eina 6mm plötuna sem ég er með og bota G alveg í gegnum plötuna slípa hana svo til og taka svo 2mm koparplötu og skella undir sem snertir örgjörvann, svo tek ég hina 6mm plötuna og geri sama munstur nákvæmlega eins en bora ekki alveg alla leið í gegn en bora náttúrulega í gegn þar sem vatnið kemur inn og út ? Var að spá á þessu vegna þess að ég er bara með 2 6mm plötur sem eru 1.2 cm á þykkt þá gæti meira vatn fengið að leika um og kaldavatnið kemst ennþá nær örgjörvanum ? Er þetta bull eða ? Hvernig gerðir þú þetta t.d gnarr ? Fletch ? einhver svona kælingar meistari koma svo fer að starta þessu
Sko, þetta er eitt það versta sem þu getur gert, best er að sú hlið sem snertir cpu-inn er líka með rákum eða hvað þú vilt kalla það, strax og þú ert farin að splæsa einhverjum hlutum saman þá ertu að missa leiðni.
Rákinar þurfa ekki að vera háar, þar sem það er búið að sýna sig a 2-3mm er alveg nóg.
Síðan er kopar ekki mest hitaleiðandi málmur sem er.
Silfur leiðir hita mun betur.
Mæli með að þú kíkjir á procooling.com.
Þar eru þeir bestu sem eru að smíða þetta sjálfur,minnir líka að Ástralska overclockers forumið hafi verið stundað af góðum waterblock smiðum
Sent: Fim 01. Feb 2007 18:56
af @Arinn@
Er nóg að göngin sem vatnið rennum í gegnum í koparnum sé bara 4 mm ?
Sent: Fim 01. Feb 2007 20:22
af elv
Alveg nóg, en! botninn sem snertir cpu-inn má ekki vera minni/meiri en 2-4mm, þanning að 5-6mm kopar flatjárn er alveg tilvalið í þetta.
Svipað þykkur toppur er líka fín, þá er fín pláss til að snitta göt fyrir slöngunipplanna.Talandi um þá ,þá eru 1/2" og 3/4 stærðinar sem þú leitar að, reyndu að fá þá úr kopar(eir,messing það skiptir ekki alveg öllu).
Sent: Fim 01. Feb 2007 20:51
af @Arinn@
ok takk kærlega fyrir þetta, þá ræðst ég bara á þetta en kannski ég sendi inn myndi hvernig ég fer að svo þið skiljið mig 100%
er nóg að göngin sem ég geri séu 2-3mm þykk á hvorri plötunni svona hehe vill vera svo 100% viss um að gera þetta alveg rétt..
Tými ekki að kaupa aðrar svona koparplötur helvíti dýrar.
Sent: Fim 01. Feb 2007 20:58
af elv
Það er alve nóg að gera þetta bara á botnplötuna, hafa hina bara slétta með tveimur götum fyrir nipplanna.
Sent: Fim 01. Feb 2007 21:00
af elv
Sent: Fim 01. Feb 2007 21:58
af @Arinn@
helduru að það dugi alveg að hafa bara 3mm göng sem vatnið fer í gegnum ? Hvernig mæliru svo með að festa plöturnar saman ? Lima eða logsjóða með tini ? Ég er náttúrulega bara með 2x6mm plötur sem getir saman 1.2 cm
Sent: Fös 02. Feb 2007 03:54
af gnarr
var koparinn dýr? ég fékk eins og A4 að stærð og circa cm að þykkt á 1500kr.
Sent: Fös 02. Feb 2007 11:10
af @Arinn@
Sko ég fékk 2 kubba sem voru 6mm á þykkt og 4cm breidd og 6cm á leng á 1100 krónur... sem er slatti. En dugar þetta fyrir mig semsagt ?
Sent: Fös 02. Feb 2007 12:16
af Voffinn
@Arinn@ skrifaði:Lima eða logsjóða með tini ?
Logsjóða með tini == lóða
Sent: Fös 02. Feb 2007 12:19
af @Arinn@
já eða svona eiginlega það heldur kannski betur ég myndi nota samt eitthvað sterkara en tin en ég gæti trúað að það sé ennþá aðveldara að líma þetta með einhhverju mjög sterku lími t.d sikaflex eða einhverju svoleðis... Eða bara hverju mæliði með að gera ?
Sent: Fös 02. Feb 2007 20:53
af elv
Notaði sjálfur bara silicon, virkar á baðið, hlaut að duga í eina blokk