Síða 1 af 1
SpeedFan
Sent: Lau 14. Okt 2006 23:35
af gunnargolf
Ég fékk mér þetta forrit en botna hvorki upp né niður í þessum hitatölum í Readings flipanum. Hvað er hvað og af hverju er harði diskurinn minn On-fire samkvæmt þessum tölum
Temp1: 40°
Temp2: 35°
Temp3: 42°
HD0 : 64°
Temp1: 22°
Eru þetta góðar tölur eða á maður ekkert að treysta þessum tölum
Sent: Sun 15. Okt 2006 08:40
af Yank
Ég hef nú notað þetta forrit töluðverð og yfirleitt er að marka HD hitann.
Síðan getur verið nokkuð maus að finna út hvað er t.d. system, og PSU en cpu hiti er yfirleitt auðveldastur. Ágætt að henda prime á cpu og þá er sá hiti sem ríkur hraðast upp cpu. Nota þó yfirleitt eitthvað annað forrit til þess að bera sama við t.d. Sisoft Sandra og skoða hitann í bios líka.
Sent: Sun 15. Okt 2006 10:43
af @Arinn@
Það er ekki hitamælir í harðadisknum hans.
SpeedFan
Sent: Sun 15. Okt 2006 11:36
af gunnargolf
Ég talaði við einhverja gaura í Att og sagði þeim að Harði diskurinn væri í 60° eða eitthvað en þeir sögðu að það væri ekkert að marka þetta forrit því að það væri ekki neinn mælir á harða disknum sjálfum. Eru þeir ruglaðir eða er SpeedFan ruglað.
Re: SpeedFan
Sent: Sun 15. Okt 2006 18:35
af Mazi!
gunnargolf skrifaði:Ég talaði við einhverja gaura í Att og sagði þeim að Harði diskurinn væri í 60° eða eitthvað en þeir sögðu að það væri ekkert að marka þetta forrit því að það væri ekki neinn mælir á harða disknum sjálfum. Eru þeir ruglaðir eða er SpeedFan ruglað.
hvernig disk ertu með?
ps: þetta forrit er alls ekkert rugl! þetta er eitt það besta hitaforritið sem ég veit um
Tegund HD
Sent: Sun 15. Okt 2006 19:03
af gunnargolf
Sent: Mán 16. Okt 2006 02:40
af gnarr
það eru hitamælar í nánast öllum hörðumdiskum sem hafa verið framleiddir síðustu 10 árin.