Síða 1 af 2

Hve hljóðlát er vélin ?

Sent: Mið 06. Sep 2006 00:04
af Beetle
Vaktin.is er frábær f. comp. áhugasama einsog mig, sennilega sú síða sem ég er mest á.. staðreyndin er sú að eftir margra ára fikt er
það hérna (Vaktin.is) sem manður fær vitræn svör við spurningum sínum...... En mál málanna : er vélin hávaðasöm ??? þetta er aðal málið hjá okkur félögunum núna, það eru lágværar góðar viftur og stýringar !!!!! Hvað er leiðinlegra en að sitja inní stofu m. tölvuna í gangi og hávaðinn óþolandi....... hver kannast ekki við það ?
Hvað hafið þið að segja um þetta ?

Sent: Mið 06. Sep 2006 10:36
af ÓmarSmith
vatnskæling, viftulaust PSU, box utan um HD, SilenX kassaviftur, Antec P-180 kassi

þá ættiru að vera í fínum málum.

Sent: Mið 06. Sep 2006 10:56
af zaiLex
kaupa frekar hljóðláta hdd heldur en að kæfa þá.

Sent: Mið 06. Sep 2006 11:11
af ÓmarSmith
HD í dag eru flestir nokkuð Silent en þetta BoX sem Start var að selja utan um þá kæfir þá ekki, það er fínasta kæling í leiðinni.

einnig er auðvelt að fá viftur sem blása á boxin fyrir enn frekari kælingu hafi menn áhyggjur.

Sent: Mið 06. Sep 2006 13:05
af kemiztry
Diskarnir verða nógu hljóðlátir í P180 turninum. Málið er að halda líka kassaviftum í algjöru lágmarki.

Sent: Mið 06. Sep 2006 14:00
af ÓmarSmith
Það er gífurlega erfitt að halda öllum hávaða alveg niðri. KAssaviftur alveg í low eru nánast SILENT, Örraviftur geta verið alveg silent, Skjákort geta verið alveg silent.

Það er PSU og HD sem er að heyrast í , og oft móðurborð viftur.

Sent: Mið 06. Sep 2006 16:34
af Snorrmund
ÓmarSmith skrifaði:Það er gífurlega erfitt að halda öllum hávaða alveg niðri. KAssaviftur alveg í low eru nánast SILENT, Örraviftur geta verið alveg silent, Skjákort geta verið alveg silent.

Það er PSU og HD sem er að heyrast í , og oft móðurborð viftur.
Einu ráðin við því eru að skipta út PSU viftu sem getur oft verið flókið og finna hljóðlátan harðadisk og setja svona zalman northbridge heatsink á northbridgeið..

Sent: Lau 16. Sep 2006 13:49
af Beetle
Var að komast að snilldarlausn í smb. við leiðnihljóðið sem berst frá tölvunni í gegnum borðið, hilluna eða annað....... keypti 4 gúmmí tappa í Ámunni og setti undir vélina og viti menn.... SILENCE ! :shock:

Sent: Sun 17. Sep 2006 01:07
af gnarr
í guðana bænum reyndu að vanda málfarið hjá þér örlítið.

Sent: Mán 18. Sep 2006 15:05
af Beetle
gnarr skrifaði:í guðana bænum reyndu að vanda málfarið hjá þér örlítið.


???? Hvað er málið ?????? er nýbyrjaður hérna og fæ ekkert nema allskonar óþarfa athugasemdir og tilvitnanir í reglurnar..... Hmmmmm, er vaktin.is kannski eh. einkaklúbbur sérvalinna einstaklinga sem vilja fá að vera í friði ? Mér er spurn, allavega virðist mér svo vera.... Hendið mér bara út og þá fáið þið frið.... :8)

Sent: Mán 18. Sep 2006 15:36
af ÓmarSmith
Rólegur Bjalli .

Það er bara lágmark að stafsetja nokkuð rétt og skrifa skilmerkilega. Það er búið að tyggja á þessu á Vaktinni síðan 2002 þannig að ;)

Ekki taka þessu persónulega, bara bættu þetta og allir ku sáttir vera.

Sent: Mán 18. Sep 2006 16:55
af stjanij
ekki taka þessu ílla enn það er lágmark að fylgja reglum spjallvefsins, þetta er gert til þess að umræðan geti verið skilmerkileg og komist áfram til hinna sem eru að lesa umræðurnar.

Endilega að vera hjá okkur enn bara virða reglurnar :)

Sent: Mán 18. Sep 2006 20:55
af Beetle
Ágætu félagar, ég byrjaði þennan þráð á því að lýsa ánægju mína með Vaktina og smá hugleiðingu um minni hávaða í vélunum... OK búið að biðja mig að bæta málfarið og fara eftir reglum ??????
Vinsamlegast bendið mér á hvað er að !!! maður hefur alltaf gott af því að læra :?
Ps. Maður skrifar "fylgja" en ekki filgja" ..... þetta með málfarið, ekki satt !

Sent: Mán 18. Sep 2006 21:30
af gumol
Ok, ég skal gera þeð

Hérna eru tvö atriði:
Þarft bara eitt spurningamerki í enda spurningar, ekki 6 er það nokkuð??????
Þarft ekki að ..... hafa marga punkta .... inn á milli setninga....

Sent: Mán 18. Sep 2006 22:03
af Beetle
gumol skrifaði:Ok, ég skal gera þeð

Hérna eru tvö atriði:
Þarft bara eitt spurningamerki í enda spurningar, ekki 6 er það nokkuð??????
Þarft ekki að ..... hafa marga punkta .... inn á milli setninga....


Aha, nú skil ég, ritstíll minn pirrar ykkur, gerði mér ekki grein fyrir því að svona smámunasemi (finnst mér) myndi valda slíku uppnámi. Skal hætta þessu strax !
Ps.: til þess er viðkemur, hefur þú lesið bækur Halldórs K. Laxness ?
Hann fékk Nóbels verðlaun ! :roll: [/quote]

Sent: Mán 18. Sep 2006 22:28
af Birkir
Beetle skrifaði:
gumol skrifaði:Ok, ég skal gera þeð

Hérna eru tvö atriði:
Þarft bara eitt spurningamerki í enda spurningar, ekki 6 er það nokkuð??????
Þarft ekki að ..... hafa marga punkta .... inn á milli setninga....


Aha, nú skil ég, ritstíll minn pirrar ykkur, gerði mér ekki grein fyrir því að svona smámunasemi (finnst mér) myndi valda slíku uppnámi. Skal hætta þessu strax !
Ps.: til þess er viðkemur, hefur þú lesið bækur Halldórs K. Laxness ?
Hann fékk Nóbels verðlaun ! :roll:
En ekki þú, þannig að þér leyfist þetta ekki.

Sent: Mán 18. Sep 2006 23:38
af gumol
Hef lesið tvær bækur (eða sex) eftir Laxnes, villurnar hans er allt aðrar. Hann skrifar orðin öðruvísi en á að gera, en uppsetningin er svipuð.

Sent: Mán 18. Sep 2006 23:46
af ÓmarSmith
Með fullri virðingu fyrir Dóra Lax en þá eru bækurnar hans alveg það leiðinlegast sem ég hef þurft að lesa ( þegar ég gékk til MK )

að þurfa að lesa allt " púngur og öngvinn, lángur língur " GRRRR.

Var næstum búinn að taka School Shooting tour á þetta .

En thank god að þetta er búið.

Sent: Þri 19. Sep 2006 00:00
af Beetle
ÓmarSmith skrifaði:Með fullri virðingu fyrir Dóra Lax en þá eru bækurnar hans alveg það leiðinlegast sem ég hef þurft að lesa ( þegar ég gékk til MK )

að þurfa að lesa allt " púngur og öngvinn, lángur língur " GRRRR.

Var næstum búinn að taka School Shooting tour á þetta .

En thank god að þetta er búið.

Sæll Ómar. gaman að heyra í þér. (.....) :8)

Sent: Þri 19. Sep 2006 00:26
af Vilezhout
Það er munur á fáfræði og lærðri sérvisku.

Að menn skuli vera að líkja sér við Laxness vegna þess að þeir leggja það ekki á sig að vanda sig í stafsetningu.

P.s. Laxness fékk heldur ekki bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir stafsetningu heldur fyrir allt aðra hluti.

Sent: Þri 19. Sep 2006 08:49
af gumol
"Kenfólkið er veikara en mannfólkið"
"Maður er ekki maður nema hann sé sjálfstæðismaður"

Laxnes klikkar ekki. Reyndar er Íslandsklukkan frekar leiðinlega, Sjáfstætt fólk er betri.

Sent: Þri 19. Sep 2006 09:30
af ÓmarSmith
hehe

Já það er reyndar rétt Hjá Gumol.

Íslandsklukkan var þvílíkt sorp og Sjálfstætt fólk fékk mann til að hlægja nokkrum sinnum , en annars var hún alveg skelfing líka.

Og ég sagði " með Fullri Virðingu " fyrir dóra lax.

Sent: Þri 19. Sep 2006 10:23
af corflame
Mér er alveg sama hversu mörg verðlaun kallinn fékk eða hvort hann skrifaði sérviskulega eða ekki.

Bækurnar hans eru leiðinlegasta efni sem ég hef verið látinn lesa á mínum skólaferli og þá eru dönsku- og stærðfræðibækur ekki undanskildar.

Aðeins ein bók sem hefur "toppað" laxnessinn, það var innilega illa skrifuð og uppsett bók um líftæknifræði.

Sent: Þri 19. Sep 2006 17:55
af Veit Ekki
Beetle skrifaði:
gumol skrifaði:Ok, ég skal gera þeð

Hérna eru tvö atriði:
Þarft bara eitt spurningamerki í enda spurningar, ekki 6 er það nokkuð??????
Þarft ekki að ..... hafa marga punkta .... inn á milli setninga....


Aha, nú skil ég, ritstíll minn pirrar ykkur, gerði mér ekki grein fyrir því að svona smámunasemi (finnst mér) myndi valda slíku uppnámi. Skal hætta þessu strax !
Ps.: til þess er viðkemur, hefur þú lesið bækur Halldórs K. Laxness ?
Hann fékk Nóbels verðlaun ! :roll:


Hann fékk leyfi frá danska konunginum til að skrifa svona.

Sent: Fim 21. Sep 2006 22:34
af zaiLex
Ég hef bara lesið Íslandsklukkuma og mér fannst hún mjög skemmtileg.