Síða 1 af 1

Antec p150

Sent: Sun 03. Sep 2006 11:07
af GuðjónR
Er einhver með svona kassa og ef svo hvernig reynist hann? Er hann jafn silent og sagt er?

Sent: Sun 03. Sep 2006 13:05
af ManiO

Sent: Sun 03. Sep 2006 15:26
af neon_no1
held að Guðjón hefði alveg sjálfur getað googlað þessu....
Ég myndi samt benda ykkur á þetta review: http://www.silentpcreview.com/article272-page1.html

þetta eru silencing hard-coreistar og antec bjó til P180 í samvinnu við þá, og þessi kassi er að mörgu leyti byggður á honum.

eitt er samt víst, mér daaaauuuuðlangar í hann....verst að það er bara tölvulistinn sem selur hann og á 23þús. Það væri hægt að fá hann á 18þús gegnum amazon og shopusa... munar svosem um 5þús kallinn, en kannski ekki ef maður tekur ábyrgð, vesen og tíma með inní myndina

Sent: Sun 03. Sep 2006 15:33
af ManiO
neon_no1 skrifaði:eitt er samt víst, mér daaaauuuuðlangar í hann....verst að það er bara tölvulistinn sem selur hann og á 23þús. Það væri hægt að fá hann á 18þús gegnum amazon og shopusa... munar svosem um 5þús kallinn, en kannski ekki ef maður tekur ábyrgð, vesen og tíma með inní myndina


Gleymdu nú ekki sendingarkostnaðinum og tollum, þannig að 23þús er kannski ekkert svo slæmt (sérstaklega ef þeir eiga hann á staðnum).

Sent: Sun 03. Sep 2006 15:59
af neon_no1
ég var að tala um með öllu, sendingu úti og hingað og tolli, útreiknuðu skv shopusa.is

Sent: Sun 03. Sep 2006 16:32
af GuðjónR
p150 er sem sagt betri en p180 :)
flott skelli mér á einn svona í Tölvulistanum.

Sent: Sun 03. Sep 2006 16:45
af neon_no1
P180 er bara svo stór...allavega fyrir minn smekk.

Sent: Mán 04. Sep 2006 16:38
af Tjobbi
ég tæki p150 :D , 180 er ótharflega stór

Sent: Mán 04. Sep 2006 18:39
af kemiztry
Ég er með P180 og er mjööög ánægður! Heyrist ekki múkk í hörðu diskunum (er með einn 74GB Raptor). Á reyndar eftir að fá mér nýja örgjörvaviftu og viftu á skjákortið. Þá ætti kvikindið að vera alveg silent :D

Sent: Mán 04. Sep 2006 18:51
af goldfinger
p180 svartur er bara geðveikur

Sent: Þri 05. Sep 2006 10:45
af ÓmarSmith
Stór ?

Ekki eruð þið með þetta upp á skrifborði. Ef svo er. hvað munar þá um 10cm til eða frá.

P-180 er líkl. með betri og stílhreinni kössum á markaðnum í dag. Hann er óendanlega vel hannaður og er mjög silent miðað við aðra kassa í dag.

Sent: Þri 05. Sep 2006 11:52
af ManiO
ÓmarSmith skrifaði:Stór ?

Ekki eruð þið með þetta upp á skrifborði. Ef svo er. hvað munar þá um 10cm til eða frá.

P-180 er líkl. með betri og stílhreinni kössum á markaðnum í dag. Hann er óendanlega vel hannaður og er mjög silent miðað við aðra kassa í dag.


En P150 var hannaður með það í huga hvað var að P180.

Sent: Fös 08. Sep 2006 12:40
af ÓmarSmith
Klárlega ekki með lookið samt.

P 150 er bara " hest-ljótur "

P 180 er virkilega glæsilegur kassi.


OG ef menn eru með þetta á gólfinu þá skiptir þessi stærð engu máli. Fyrir utan hvað er gott að vinna með hann og installa dóti í hann.

Sent: Fös 08. Sep 2006 12:56
af beatmaster
selur einhver búð hérna p180?

Sent: Fös 08. Sep 2006 14:18
af kemiztry
beatmaster skrifaði:selur einhver búð hérna p180?


Fékk minn í Tæknibæ.

Sent: Fös 08. Sep 2006 14:19
af ÓmarSmith
Start hafa líka verið með hann.

Tölvutækni getur sérpantað hann líka.

Sent: Fös 08. Sep 2006 14:45
af GuðjónR
kemiztry skrifaði:
beatmaster skrifaði:selur einhver búð hérna p180?


Fékk minn í Tæknibæ.

Ertu ánægður með þinn eða hefðir þú átt að taka 150 frekar?

Sent: Fös 08. Sep 2006 16:50
af goldfinger
ÓmarSmith skrifaði:Tölvutækni getur sérpantað hann líka.


Til á lager samkvæmt síðunni.