Síða 1 af 1

Zalman 9500

Sent: Sun 06. Ágú 2006 15:27
af Fetzer
Ég er með svona huge zalman 9500 viftu, og það fylgdi með henni svona zalman fan mate 2 , sem á að geta hækkað og lækkað speedið á viftunni!. eg er allaf með hana i botni, en hún er ekkert að snúast hratt, hún er ekkert stifluð eða neitt þanning og ef eg prófa að snúa henni i lægsta snúning þá bara fer hún á ennþá minni snúning , en allavegana eg var að googla þetta og sé myndir eins og þessa http://mcs.pc.pl/shop_img/zalman/9500_s_p.jpg

þessi mynd sýnir hana alveg í 100% botni, og er alveg blá þegar hún gefur inn segja mennirnir i start.is en mín verður ekki einu sinni svona blá, því þetta er að fara svo hægt? kopar grindinn utanum hana er bara volg ! er ekki að fatta hvað það gæti veið að sem væri að trufla eða hvaa er bilað?

Sent: Sun 06. Ágú 2006 16:49
af Tjobbi
Hvad er hitinn á orgjafanum sirka?

Re: Zalman 9500

Sent: Sun 06. Ágú 2006 16:59
af audunn
Fetzer skrifaði:kopar grindinn utanum hana er bara volg ! er ekki að fatta hvað það gæti veið að sem væri að trufla eða hvaa er bilað?

viltu hafa hana sjóðandi? :D getur prófað að taka fanmate stýringuna úr sambandi og tengja viftuna beint á móðuborðið, ætti að snúast á fullum krafti ef þú gerir það

hvernig örgjörva ertu með? fínt að tékka í biosnum hver hitinn er og hvað viftan snýst hratt... low speed er ca 1300rpm og high speed ca 2600rpm

Kemur einhver blár litur? það eru til fleiri en ein týpa af 9500 og einhverjar sem eru ekki með ljósi (held ég!) :D

Sent: Sun 06. Ágú 2006 17:59
af Fetzer
hitinn er um 29-30 og hún snýst á 1300rpm .. semsagt low , búinn að prófa að taka hana ur sambandi og plugga henni beint i moboið, breyttist eitthvað í 1400rpm, en já það kemur slátt ljós, en það er bara svo dauft utaf það er svo litill snúningur .. bara smá blátt ljós i miðjunni á viftunni

er með 8 viftur, semsagt hddr og f.l og 2 kassaviftur 120 cm og þær snúast báðar bara svona 3falt hraðar :shock:

Sent: Sun 06. Ágú 2006 19:14
af Tjobbi
Fetzer skrifaði:hitinn er um 29-30 og hún snýst á 1300rpm .. semsagt low , búinn að prófa að taka hana ur sambandi og plugga henni beint i moboið, breyttist eitthvað í 1400rpm, en já það kemur slátt ljós, en það er bara svo dauft utaf það er svo litill snúningur .. bara smá blátt ljós i miðjunni á viftunni

er með 8 viftur, semsagt hddr og f.l og 2 kassaviftur 120 cm og þær snúast báðar bara svona 3falt hraðar :shock:



ég yrdi bara ángægdur, 29-30 er ekki neitt, mín snýst á 2600rpm og ég er i 35-40

Sent: Sun 06. Ágú 2006 19:19
af Blackened
Fetzer skrifaði:hitinn er um 29-30 og hún snýst á 1300rpm .. semsagt low , búinn að prófa að taka hana ur sambandi og plugga henni beint i moboið, breyttist eitthvað í 1400rpm, en já það kemur slátt ljós, en það er bara svo dauft utaf það er svo litill snúningur .. bara smá blátt ljós i miðjunni á viftunni

er með 8 viftur, semsagt hddr og f.l og 2 kassaviftur 120 cm og þær snúast báðar bara svona 3falt hraðar :shock:


Bíddu.. afhverju í ósköpunum viltu að hún snúist hraðar ef að örrinn þinn er bara 30° heitur? viltu að hún sé bara á 10k rpm og öskri af hávaða eða? :S

Sent: Sun 06. Ágú 2006 20:00
af Fetzer
nei... en eg vill ekkert endilega hafa hana á meiri hraða en það er skrítið að hún fer ekkert hraðar .. !

Sent: Sun 06. Ágú 2006 20:22
af TechHead
Nei skiljiði ekki, hann verslaði viftuna bara fyrir bláa ljósið! Hverjum er ekki sama um hita og hávaða :roll:

En já annars er útskýringin sú að viftan á þessari ljósmynd er greinilega uppskrúfuð að keyra á 16 til 20 voltum.
Ábyggilega á blússandi siglingu á 5000rpm og 40db.
(sem er greinilega bara gert fyrir myndatökuna....)

Led ljósið sem er í viftunni er tengt í sömu straumrás og viftan tekur úr Fan headerinum..
semsé ef þú lækkar hraðann í henni á fanmate þá ertu að lækka strauminn sem viftan fær
og umleið á led ljósinu líka sem verður daufara eftir því sem það fær minni volt.


fanmate græjan kemur greinilega forstillt á 6v min og 9v max, eða eitthvað álíka og þótt þú tengir
hana beint í móðurborðið þá ertu líklega með cool&quiet virkt í BIOS (sem hækkar og lækkar voltin á viftunni eftir hita örgjörva.)


P.S. þessi vifta Á EKKI AÐ SNÚAST HRAÐAR. þetta er gert út á að vera
hljóðlátt á sama tíma og það losar mikinn hita.... semsé betri hönnun á
heatsink ásamt stórri viftu = Betri hitaleiðni og minni snúningur á viftu
sem minnkar hávaða :wink:

Sent: Sun 06. Ágú 2006 22:46
af Fetzer
eg skil það vel, og vissi það, en það er skiritð að þessi vifta á að geta snúist á 2600rpm og er bara á 1300 sem er low & silent en skil ekki þarf maður þá að kaupa sér eitthver litinn straum breyti til að geta nýtt hana 100%

Sent: Sun 06. Ágú 2006 23:25
af audunn
getur verið að það sé útaf cool & quiet stillingunni í bios eins og techhead nefndi? kannski nóg að gera það óvirkt í biosnum? :?

viftan hlýtur að fara á meiri hraða en 1300rpm þegar tölvan er í þungri keyrslu

Sent: Mán 07. Ágú 2006 15:28
af gnarr
þessi mynd þarna er alveg pottþétt tekin á löngum tíma og svo photoshoppuð til að gera bláa litinn sterkari..

Sent: Mán 07. Ágú 2006 15:43
af Fetzer
skil það alveg .. en eg er með svona "fan controller" sem sýnir hvað hún sníst hratt... og það eru tvær stillingar á henni "slow 'n' cool" og "Noice 'n' Freeze" eða eitthvad i þá áttina og það stendur að slow snýst á 1300rpm og noice snýst á 2600 og það sýnir alltaf bara 1330rpm á "fan controllerinum" get ekkert hækkað það til að ná þessum 2600rpm

Sent: Þri 08. Ágú 2006 17:20
af Arnarr
settu hana í botn og slöktu öll ljós.. þá sérðu bláa ljósið.. er með svona

Blátt ljós? Myndataka.

Sent: Fim 10. Ágú 2006 22:45
af s1n
Gæti líka verið að myndavélin hafi látin hafa ljósopið aðeins lengur en venjulega er gert, það vera allt eftir ISO hraðanum á lokanum á myndavélinni...

Well, good luck með ljósið. :P

Re: Blátt ljós? Myndataka.

Sent: Fim 10. Ágú 2006 22:50
af Baldurmar
gnarr skrifaði:þessi mynd þarna er alveg pottþétt tekin á löngum tíma og svo photoshoppuð til að gera bláa litinn sterkari..

rétt.


s1n skrifaði:Gæti líka verið að myndavélin hafi látin hafa ljósopið aðeins lengur en venjulega er gert, það vera allt eftir ISO hraðanum á lokanum á myndavélinni...


Vá hvað það er mikið af staðreyndarvillum í þessum texta...

Sent: Fim 10. Ágú 2006 23:50
af Fetzer
sælir, fattaði þetta. nei nei Þetta er alveg rétt mynd.. þetta Cool n quiet system i biosinu gerir ekkert, en start.is fann þetta út .. nú sníst hún a 2800rpm
:P