Síða 1 af 1
Örgjörvavifta
Sent: Þri 13. Jún 2006 22:10
af thiwas
sælir,
hvernig örgjörvaviftu á ég að kaupa mér, það eru svo helvíti mikil læti í hinni, langar í einhverja hljóðlátari, þarf ekki að vera einhver rosa græja,
er með Intel P4 örg.
Sent: Þri 13. Jún 2006 22:23
af Hlynkinn
Hef heyrt að zalman 9500 sé fín kostar um 6 þús kall
Sent: Þri 13. Jún 2006 22:54
af @Arinn@
SilenX blómið er mjög hljóðlátt sérstaklega ef maður tengir viftustýringu og lækkar alveg.
Sent: Mið 14. Jún 2006 00:25
af Blackened
Eitt.. ertu alveg viss um að þetta sé örgjörva viftan? en ekki Northbridge eða skjákortið?
Mæli með því að þú prufir að stoppa allar viftur í tölvunni í nokkrar sek bara með að leggja putta ofaná þær eina í einu.. og vera alveg pottþéttur um að þetta sé bara örraviftan.. því að þú vilt kannski ekki vera að splæsa 5þús í nýja glæsilega ofurhljóðláta viftu ef þetta er síðan ekkert hún sem er með læti
Sent: Mið 14. Jún 2006 13:00
af Mazi!
mæli með TT Big Typhoon eða zalman blómi
TT Big Typhoon:
http://kisildalur.is/?p=2&id=36
Sent: Mið 14. Jún 2006 13:30
af ManiO
Ninja Scythe á að vera gott, en verst er að það fæst ekki hérlendis að minni vitund.
Sent: Fim 15. Jún 2006 00:33
af thiwas
já þetta er örraviftan, búinn að tékka á þeim öllum, vantar einhverja bara ódýra en samt hljóðláta.....
Sent: Fim 15. Jún 2006 02:40
af kristjanm
Ef hún á að vera ódýr og hljóðlát mæli ég með Zalman CNPS7000Cu sem er á 2.990 í start.
Sent: Fim 15. Jún 2006 13:18
af audiophile
Ég mæli einnig sterklega með Zalman CNPS7000Cu. Hún er léttari en stóra Zalman viftan en kælir samt alveg feikivel og er hljóðlát. Hún er einnig mjög auðveld í uppsetningu.
Sent: Fim 15. Jún 2006 19:54
af @Arinn@
Mér finnst nú heyrast alveg nóg í henni sko
Sent: Fim 15. Jún 2006 20:04
af urban
@Arinn@ skrifaði:Mér finnst nú heyrast alveg nóg í henni sko
tjahh ég er með það og það heyrist ekki múff í henni eftir að ég lækka aðeins í henni í speedfan.. fer með hana niðrí svona 70 % og þa´er hún hljóðlát