Síða 1 af 1

dugar 300w psu fyrir amd64 vél ?

Sent: Mið 29. Mar 2006 09:50
af MuGGz
Mér vantar turnkassa og er svona að pæla í að kaupa bara einn nýjan og ódýran

er að pæla í þessum http://computer.is/vorur/3143

enn þá kemur spurninginn, dugar 300w psu fyrir amd64 vél ?

vélin verður einhvernvegin svona

amd64 3000-3200
9700 pro skjákort
80gb hdd
geisladrif
skrifari
hljóðkort

Sent: Mið 29. Mar 2006 10:02
af xpider
ég myndi halda að það ætti að duga en ef þú vilt reikna þá er þessi síða sniðug -> http://extreme.outervision.com/index.jsp

Sent: Mið 29. Mar 2006 13:23
af CendenZ
það fer bara allt eftir straumúttakinu sem það nær að púlla.

Sent: Mið 29. Mar 2006 14:25
af gumball3000
ég er ekki viss um að þetta eigi eftir að gera sig :? ekki ef þú ert með 1x harðandisk og 2x drif

Sent: Mið 29. Mar 2006 15:43
af Yank
Ég setti AMD 2600+ 9800 pro 1xHD 1xskrifara 1gb ram í svona kassa með orginal PSU.
Þetta gengur hjá þér. En hvort það endist í 10 ár er annað mál PSU í þessum kössum eru hálfgert dót. Annars er Tölvulistinn að moka út vélum í þessum kössum.

Sent: Mið 29. Mar 2006 16:49
af Veit Ekki
Ég er með 300W Fortron aflgjafa. Er með AMD 3000+ s754, 1GB í RAM, 9800XT skjákort, 2 harða diska, 2 drif og sjónvarpskort og hef ekki lent í neinu veseni.

Sent: Mið 29. Mar 2006 18:55
af Vilezhout
Vinur minn var með svona kassa 3000+, 1024mb ram, 2*80gb hdd og 9600xt og það var aldrei neitt vesen með þetta nema að viftan dó þegar eftir smá flutningaslys og þá náði aflgjafinn ekki að skila nægilegu afli enn það var auðleyst með nýrri viftu

Sent: Fös 31. Mar 2006 10:21
af Axolotl
Þetta er alveg á mörkunum og alls ekki nægjanlegt afl ef meira hardware bætist við tölvuna.

Ekki er æskilegt að venjubundin aflnotkun sé að fara yfir 65% af getu aflgjafans, annars getur tölvuna þrotið afl á álagspunktum.

Sent: Lau 01. Apr 2006 09:02
af kristjanm
Það er mikilvægt upp á hinn vélbúnaðinn í tölvunni að vera með góðan og traustan aflgjafa í vélinni.