Síða 1 af 2

Skemmd Zalman CNPS9500 vifta?

Sent: Mán 13. Mar 2006 19:47
af Heliowin
Hef vandamál með ágæta Zalman CNPS9500 LED örraviftu.

Heyri suð í henni þegar ég ræsi tölvuna.
En ef ég slekk á tölvunni og ræsi aftur, heyrist suðið ekki.

Keypt'ana fyrir mánuði síðan.
Misti dýrgripinn á gólfið þegar ég var að dást að´enni, áður en ég setti hana upp. Virkaði samt og án suðsins í þrjár vikur.

Er hún virkilega skemmd?

Sent: Mán 13. Mar 2006 19:56
af CendenZ
WD40.

Sent: Mán 13. Mar 2006 20:52
af Heliowin
CendenZ skrifaði:WD40.


Dísus!

a) Hefur einhver pælingu á sambandinu milli viftu suðsins og að hafa misst hana á gólfið= skemmd/ónýt?

b) Bara skrítið að suðið komi ekki ef ég slekk á tölvunni og ræsi strax á ný.

c) Vill vera án suðsins=ekki smámunasemi

d) Viftan er snotur og góð= ég skal samt gæta að því að sýna ekki pervertahátt yfir hrifningu minni á dauðum hlutum!

Sent: Mán 13. Mar 2006 21:42
af viddi
CendenZ skrifaði:WD40.

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:18
af Viktor
viddi skrifaði:
CendenZ skrifaði:WD40.

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:22
af Veit Ekki
Hvað er málið með "WD40"?

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:22
af Birkir
Benda honum á að nota WD40.

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:25
af Veit Ekki
Birkir skrifaði:Benda honum á að nota WD40.


Aha, kíkti á Wikipediu og fann hvað það er. :P

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:27
af @Arinn@
Ég vissi hvað WD40 var þegar ég var 3ára. Var alltaf að laga hjólið mitt með því.

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:36
af axyne
@Arinn@ skrifaði:Ég vissi hvað WD40 var þegar ég var 3ára. Var alltaf að laga hjólið mitt með því.


ég "lagaði" hjólið mitt alltaf með Kóki. :D

fínt að liðga upp gamla keðju með því

heliowin þú ættir kannski að prufa :twisted:

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:41
af Mazi!
laga viftu með wd40 :shock:
heilagt helvíti :shock:
hún færi í rústir!

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:46
af Snorrmund
maro skrifaði:laga viftu með wd40 :shock:
heilagt helvíti :shock:
hún færi í rústir!
afhverju færi hún í rústir? en annars var þetta svona með gömlu viftuna mina þeas það kom suð í henni svo ef ég stoppaði hana með puttanum og lét hana halda áfram þá hætti það ég lagaði það með því að taka límmiðan af viftunni sjálfri og einn dropa af einhverji olíu sem pabbi á eitthvað militec eða eitthvað :)

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:55
af Heliowin
Kræst maður!

Nú fatta ég :oops:

Ég man vel eftir þessu.
Athuga með þetta, takk fyrir!

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:57
af Mazi!
Heliowin skrifaði:Kræst maður!

Nú fatta ég :oops:

Ég man vel eftir þessu.
Athuga með þetta, takk fyrir!


allavegana ef þú ætlar að fara sulla eitthvað í olíu í tölvuni mæli ég með að þú takir viftuna úr meðan þú gerir þetta :roll:

Sent: Mán 13. Mar 2006 22:58
af Pandemic
Strákar þið eruð ekki nógu Pro ég nota saumavélaolíu með góðum árangri.

Sent: Mán 13. Mar 2006 23:14
af @Arinn@
maro skrifaði:
Heliowin skrifaði:Kræst maður!

Nú fatta ég :oops:

Ég man vel eftir þessu.
Athuga með þetta, takk fyrir!


allavegana ef þú ætlar að fara sulla eitthvað í olíu í tölvuni mæli ég með að þú takir viftuna úr meðan þú gerir þetta :roll:


Já hann spreyja WD 40 yfir alla vélina ?? Giskaður hvað hann gerir.... Hann þarf ekkert að sulla þessu.

Sent: Mán 13. Mar 2006 23:28
af Mazi!
@Arinn@ skrifaði:
maro skrifaði:
Heliowin skrifaði:Kræst maður!

Nú fatta ég :oops:

Ég man vel eftir þessu.
Athuga með þetta, takk fyrir!


allavegana ef þú ætlar að fara sulla eitthvað í olíu í tölvuni mæli ég með að þú takir viftuna úr meðan þú gerir þetta :roll:


Já hann spreyja WD 40 yfir alla vélina ?? Giskaður hvað hann gerir.... Hann þarf ekkert að sulla þessu.


tók bara svona til orða :D

ps: góða nótt :nerd_been_up_allnight

Sent: Þri 14. Mar 2006 07:26
af Rusty
WD40 virkar í alvöru á _ALLT_

Sent: Þri 14. Mar 2006 08:18
af gnarr
Sá sem að fann upp WD40 var einmit orðinn svo þreyttur á ískrinu í 40GB Western Digital disknum sínum..

Sent: Þri 14. Mar 2006 14:18
af mjamja
lol

Sent: Þri 14. Mar 2006 18:45
af Heliowin
Málið er leyst, takk fyrir!

Ég treysti mér ekki til að nota WD40 að þessu sinni, svo ég notaði saumavélaolíu eins og Pandemic mælti með. Þurfti vænan slurk.

Sent: Þri 21. Mar 2006 17:36
af skuliaxe
Bara til að bæta við "WD40 virkar í alvöru á _ALLT_" þá las ég um daginn að sumir pöbbar úti (UK minnir mig) nota einmitt WD40 og spreya því á klóstin... vaskana og svona...
Því WD40 eyðileggur Kókaínið sem margir sniffa a böbbum.

Sent: Þri 21. Mar 2006 20:20
af Rusty
líka í veggjakrot þegar litlir krakkar krota á veggi heima hjá sér.

Sent: Fim 23. Mar 2006 14:30
af Heliowin
Málið var víst ekki leyst :oops:

Eins og ég sagði: þá kemur hljóðið þegar ég ræsi tölvuna, en ekki ef ég slekk á henni og ræsi aftur (þegar ég hélt að þetta væri leyst, þá hefur hún kannski verið ennþá heit eða svoleiðis).

Annað er að ef ég held henni gangandi í svolítinn tíma, þá hættir hljóðið.
Mér sýnist bláa ljósið á viftunni flökta þegar hljóðið er.

Ég setti inn aðra viftu (Zalman eitthvað, ca.920 grömm) og það var eins með hana (hún virkar fínt á annarri tölvu).

Ég setti inn ódýran aflgjafa sem gefur 450W (í stað 300W) og það hjálpar ekki. Auk þess voru viftur aflgjafans (dual fans) þvílíkt hávaðasamar að ég varð að skipta aftur í þann fyrri.

Hérna eru helstu speccarnir fyrir vélina:

Gigabyte GA-8I945G Pro
Intel P4 630 3.0 Ghz 2MB
Gigabyte GF6600GT 128MB
Supertalent 533Mhz 1GB+512MB
Sata diskur
DVD skrifari
300W PSU
Hita monitor
Allt saman á Artemis middle tower kassa

Sent: Fim 23. Mar 2006 14:53
af gnarr
ertu að taka rafmagnið úr móðurborðinu eða beint úr psu? mér þykir líklegt að þetta sé lélegur hraðastillir á móðurborðinu.

Skoðaðu í bios og athugaðu hvort viftan sé ekki stillt á 100% þar og settu hana í það ef hún er í einhverju öðru. Ef það virkar ekki, prófaðu þá að tengja viftuna í gegnum molex tengi.