Nýji Sempron 3000+ (S754) örrinn minn


Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Nýji Sempron 3000+ (S754) örrinn minn

Pósturaf wICE_man » Mið 04. Maí 2005 17:02

Þessi örgjörvi er með þeim nýjustu frá AMD, þeir eru byggðir á 90nm SOI aðferðinni og hafa komist upp í 2.7GHz í prófunum sem ég hef séð.

Móðurborðið sem ég valdi mér er EPOX 8KDA3J sem er með Nforce3 250GB kubbasettinu og á að henta vel til yfirklukks, fyrir minnið valdi ég nýju XBL línuna frá Patriot en það er nýr framleiðandi á markaðnum. Þessi minni hafa verið að ná um og yfir 300MHz vinnsluhraða svo ég taldi mig hafa góða undirstöðu.

Það eina sem ég sé dálítið eftir er sú staðreynd að ég valdi mér SATA harðan disk en SATA controllerinn virðist ekki vera nógu stöðugur á FSB tíðnum yfir 250MHz á þessu borði.

Í fyrstu tilraun startaði ég FSB upp í 250MHz, það gekk smurt, síðan prófaði ég að lækka HTT niður í 3X og CPU multiplierinn úr 9X niður í 6X og prófaði með 280MHz FSB, Tölvan ræsti sig ekki svo ég prófaði 270FSB, þá startaði tölvan en gaf villumeldingu þegar windowsið var að starta sér, það hafði komið villa í einhverjum fæl svo ég þurfti að lagfæra windowsið. Ég hélt áfram að prófa 260FSB, tölvan komst inn í windows en fljótlega eftir að hafa klárað SuperPi (tók 40s að 1M) fékk ég aftur bláskjá og tölvan fraus. Þetta fékk mig til að áætla að ekki væri allt með feldu hjá SATA controllernum.

Ég setti tölvuna upp á IDE disknum úr gömlu vélinni og disseiblaði SATA controlerinn, þá tókst mér að ná henni upp í 280FSB/2520CPU og keyra SuperPi ég þurfti að hækka spennuna á CPU svo mig grunar að ég sé nálægt mörkunum hjá honum en samt get ég ekki gert að því að hugsa að móðurborðið sé að aftra mér.

Svo loka niðurstöður í bili eru:

Sempron 3000+ @ 2.520MHz
FBS/DDR @ 280MHz CL 3-4-4-8
SuperPi 1M á 36s (nokkuð sáttur við það)

Ég ætla að reyna að finna út hvort ég geti ekki læst PCI klukkutíðninni og náð eitthvað hærra en ég býst við að ég geti ekki kvartað yfir 40% yfirklukkun en ég hafði gert mér hærri vonir.

Nennti ekki að taka screenshot þar sem mér fannst þetta ekkert voðalega merkiegt, þau koma síðar.




kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Mið 04. Maí 2005 17:06

Hver er standard klukkuhraði á örgjörvanum?




Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Mið 04. Maí 2005 18:55

Ekki slæmt :D

Þessi SATA vandræði eru algeng skv. því sem ég hef lesið. Ég komst t.d. ekki upp fyrir 230 fbs á mínu MSI neo 2 Nforce 3. En leysti það með PCI raid controler. Keyri 24/7 á 260fbs. Þó maður heyri sögur af því að menn séu að komast í 300 fbs eða jafnvel hærra þá eru það undantekningar. Held að mjög algengt sé að Nforce 3 sé max að fara í 260 - 280. Sem er nú bara fjandi gott.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 05. Maí 2005 01:18

MSI nforce3 neo borðin eru bara með læst SATA port 3 og 4.

ertu búinn að prófa öll portin hjá þér wICE ?

annars kom ég FSB á shuttlinum mínum í 380 um daginn.. en það var laangt frá því að vera stable :)


er þessi sempron ekki basicly A64 3000+ mínus 64bit support og með hálfu cache?

ótrúlegt að þú sért að ná 36s á 2520 :) ég er að ná 35s á sama hraða.. reyndar með minnið í 180 2-3-2-5, en samt með það í dualchannel.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fim 05. Maí 2005 14:25

Update:

Ég er að nota SATA 1 portið en ég virðist hafa haft móðurborðið að rangri sök, það var minnið eftir allt saman sem hélt aftur af mér. VDimm kemst ekki hærra en 2.8 svo að minnið var takmarkað við 280MHz, þegar ég lét það ganga á 5:6 hlutfalli, þá gat ég puðrað borðinu upp í 315MHz FSB, og ég er reyndar að skrifa þetta skeyti einmitt á þeim stillingum.

Ég hef ekki komið örranum hærra en 2560MHz @1.75V svo það virðist bara vera hámarkshraðinn á þessum tiltekna gjörva. En hann virðist hafa það ágætt á þessari spennu, hann er allavega ekki yfir 38°í hvíld með stock kælingu.

SuperPi klárast á 37sek á þessum stillingum, sjá screenshot að neðan.

Ástæðan fyrir þessum frábæra árangri er sennilega endurbætingar á minnisstýringunni sem er held ég af sömu sort og í nýju Venice gjörvunum :)

Og hann er reyndar ekki með helminginn af L2 skyndiminni A64 3000+ heldur 1/4, þ.e. 128Kb :lol:

Ótrúlega nettur örgjörvi fyrir því.
Síðast breytt af wICE_man á Fim 05. Maí 2005 14:31, breytt samtals 1 sinni.




Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fim 05. Maí 2005 14:28

Svona lýtur þetta þá út:
Viðhengi
Sempron2520.JPG
Sempron3000+@2520MHz
Sempron2520.JPG (113.34 KiB) Skoðað 932 sinnum




Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fim 05. Maí 2005 14:36

Ég verð að segja að þetta móðurborð er sennilega bestu kaup sem ég hef gert, það kostaði rétt um 7000Kr komið til landsins og er að skila feikilega góðum árangri.

315MHz X3 HTT er að mínu mati mjög gott fyrir S754 borð þar sem normal stillingar eru 200X4, ég gæti e.t.v. komist hærra en þetta á 2X stillingum, á eftir að prófa það.




Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fim 05. Maí 2005 19:17

Aðeins meira:
Viðhengi
Sempron2600.JPG
Sempron3000+@2600MHz
Sempron2600.JPG (44.13 KiB) Skoðað 910 sinnum
Sempron2560.JPG
Sempron3000+@2560MHz
Sempron2560.JPG (92.97 KiB) Skoðað 909 sinnum



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1652
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Pósturaf MuGGz » Fim 05. Maí 2005 19:37

hvað er stock spennan á örgjörvanum ?

Annars nice job :8)




hahallur
Staða: Ótengdur

Pósturaf hahallur » Fim 05. Maí 2005 20:05

Held að hún sér 1.4 - 1.45



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 05. Maí 2005 22:20

úff.. kominn í 1.8v.. :?


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1652
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Pósturaf MuGGz » Fim 05. Maí 2005 22:36

já wow :shock:

ég var varla að þora að fara uppí 1.525v eða 1,48 alvöru spennu :lol:




Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fös 06. Maí 2005 00:06

Stock spenna er 1.5V, ég held reyndar að ég sé að nota óþarflega há spennu, en það virðist ekki hafa mikil áhrif á hita, hann er að fara hæðst upp í 40° þegar hann keyrir SuperPi, það kalla ég bara nokkuð svalt.

Ég er með +0.25V en síðan er móðurborðið eitthvað að ýta þessu hærra upp.

Ég er annars bara nokkuð sáttur við þetta, sé dálítið eftir að hafa ekki lesið mér betur til og fengið mér 3100+ útgáfuna sem styður SSE3 og Cool'n'quiet, það virðist samt engin þörf vera á því :) En svo er 3100+ týpan líka framleidd með "strained silicon" aðferðinni sem gerir hærri klukkuhraða mögulega. Ég var víst að rugla með að þessi væri framleiddur með nýjustu tækni :(




Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Fös 06. Maí 2005 12:56

Ótrúlega kalt hjá þér ertu að kæla þetta á lofti?

Eru ekki flesti þessir Athlon 64 bit og sú kynslóð að max út þarna í kringum 2,6 Ghz á lofti eða vatni. Nema þá FX.

Annað hvað er þetta að skora í minnisbandvídd í sandra ?
En það sem skilur náttúrulega 939 frá 754 socket er Dual Channel sem gefur mun meiri minnisbandvídd og þ.a.l. einhverja fps í leikjum svo ekki sé talað um score í 3Dmark 2001.




Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fös 06. Maí 2005 14:12

Jamm, þetta er með viftunni sem fylgdi með gjörvanum. Kassin er mjög vel loftræstur, með 2X80mm og 1X120mm viftur. Fer hæst upp í 45-47° þegar ég keyri 3dmark, 90nm SOI tæknin er sannarlega að skila sér í lægri orkunotkunn.

Á DDR550 sem er svo til það hæðsta sem ég kemst með minnið þá reikna ég með c.a. 3600MB/s minnisbandvídd m.v. 2.5-3-3-7 stillingarnar og það sem ég hef lesið um þennan gjörva.

Það er rétt til getið að hann laggi í leikjum og slíku, hann er á að giska 15-20% hægari en S939 A64 3000+ í flestum leikjum. Á venjulegum stillingum er hann samt að skora svipað og P4 2.8GHz, XP3200+, eða yfirklukkaður Celeron D á 3.4GHz.

Ég var mér til gamans að keyra 3Dmark2001 og fékk 12.300 stig með 9600pro sem mér þykir alveg ágætt.



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1652
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Pósturaf MuGGz » Fös 06. Maí 2005 15:16

Yank skrifaði:Ótrúlega kalt hjá þér ertu að kæla þetta á lofti?

Eru ekki flesti þessir Athlon 64 bit og sú kynslóð að max út þarna í kringum 2,6 Ghz á lofti eða vatni. Nema þá FX.

Annað hvað er þetta að skora í minnisbandvídd í sandra ?
En það sem skilur náttúrulega 939 frá 754 socket er Dual Channel sem gefur mun meiri minnisbandvídd og þ.a.l. einhverja fps í leikjum svo ekki sé talað um score í 3Dmark 2001.


hann Fat hérna á spjallinu setti sinn amd64 3200 uppí 2,8ghz á reteil viftunni, og setti hann í 3ghz á vapochill :P

Sjálfur er ég að fara skipta um kælikrem á örgjörvanum mínum, setja as5 og ætla mér svo að oc meira, er ekki alveg nógu sáttur með kælikremið sem tölvuvirkni nota.




Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fös 06. Maí 2005 17:20

Jamm, Fat var brjálað heppinn með sinn örgjörva, nýju Venice örrarnir eru að ná þessu 2.8GHz að staðaldri en ekki mikið meira en það.




Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Fös 06. Maí 2005 17:52

MuGGz skrifaði:
Yank skrifaði:Ótrúlega kalt hjá þér ertu að kæla þetta á lofti?

Eru ekki flesti þessir Athlon 64 bit og sú kynslóð að max út þarna í kringum 2,6 Ghz á lofti eða vatni. Nema þá FX.

Annað hvað er þetta að skora í minnisbandvídd í sandra ?
En það sem skilur náttúrulega 939 frá 754 socket er Dual Channel sem gefur mun meiri minnisbandvídd og þ.a.l. einhverja fps í leikjum svo ekki sé talað um score í 3Dmark 2001.


hann Fat hérna á spjallinu setti sinn amd64 3200 uppí 2,8ghz á reteil viftunni, og setti hann í 3ghz á vapochill :P

Sjálfur er ég að fara skipta um kælikrem á örgjörvanum mínum, setja as5 og ætla mér svo að oc meira, er ekki alveg nógu sáttur með kælikremið sem tölvuvirkni nota.


Ég á svona brauðrist eins og þú með 3200+ hann fer leikandi í 2,6 Ghz (260x10x4) en málið er að einhverja hluta vegna þá fer vcore ekki upp fyrir 1,65 hjá mér þannig hann hættir að vera stöðugur þar, þó hann pósti og komist inn í windows á hærri hz.
Hef ekki enn nennt að færa hann yfir í vatnskældu græjuna sem ég er með líka en í henni er 3500+ 130nm sem maxar út í 2,62Ghz við 1,7 vcore. Þannig maby kem ég þessum 3200+ 90nm hærra.

Mér finnst líka 3200+ betra val heldur en 3000+ til yfirklukkunar hann er lítið dýrari og multipiler 10 gerir mann ekki eins háðan móðurborði upp á fbs að gera. Ef takmarkið er að Out performa CPU sem er það öflugast sem hægt er að kaupa út úr búð í dag, þá skiptir litlu hvort hann sé ca 2000 kr. dýrari. Það að velja saman hluti, og heppni ræður mestu um hversu vel yfirklukkun gengur.



Skjámynd

MuGGz
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1652
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 01:23
Reputation: 6
Staðsetning: Fyrir framan tölvuna ?
Staða: Ótengdur

Pósturaf MuGGz » Fös 06. Maí 2005 17:59

já ég sé svolítið eftir að hafa ekki fengið mér 3200 :?

*edit* vá var að skipta um kælikrem á örgjörvanum mínum, var að setja as5, tölvuvirkni settu alveg ágætislag af kælikremi haha :D




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Mán 16. Maí 2005 20:59

Er þessi örri hjá þér 90nm?

Er það bara þessi týpa af Sempron eða eru allir Sempron örrarnir 90nm? :P




Höfundur
wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fim 19. Maí 2005 01:14

Flestir S754 Sempron eru 90nm, aðeins 3100+ er til í bæði 130nm og 90nm útgáfum. Allir SocketA gjörvarnir eru hins vegar 130nm.