Ég er í vandræðum með kælingu.

Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1702
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Þri 21. Sep 2004 21:21

Omeriah skrifaði:en ég þarf samt einhverja betri kælingu.... minka hávaðann í henni helst. er meiri hávaði í retail-viftunni eða skákortsviftunni?


Err.. hvernig eigum við að vita það ? :) En annars eru þær yfirleit báðar háværar. Þarft bara að skoða það vel, ég hljóp einu sinni til og keypti mér nýjar viftur og PSU og komst svo að því eftir á að það var harðdiskurinn sem var með mestan hávaða :)

Swifttec + SilenX kælinginn sem þú minntist á áður er örugglega hljóðlítil og svo eru margir með Zalman 7000 sem er hljóðlát á Silent stillingu.. en þá snýst hún hægar. Skoðaðu bara hvað er til í búðunum hérna á klakanum og flettu því upp í google til að finna review..

Sjálfur er ég með Zalman ZM80-D skjákorts-heatsink og skrúfaði á það 92mm viftu sem snýst á 2000rpm og er gefinn upp með 36CFM (mælieining fyrir loftflæði.. man ekki hvað þetta stendur fyrir.. cubic-eitthvað). Það er til sérstök Zalman vifta sem á að passa á ZM80-D en hún er 80mm og mjög þunn svo ég keypti frekar stærri viftu sem ég vissi að væri hljóðlát.. Hitabreytingin á skjákortinu er innann við 10 gráður frá idle(46°C) í load(54°C). Stock viftan gaf reyndar lægri hita í idle(42°C) en hitnaði mun meira í load(65°C)..

EN.. ef þú stefnir á að setja tölvuna aftur inn í skáp þá þarftu að skoða eitthvað annað en loftkælingu..




BlitZ3r
spjallið.is
Póstar: 450
Skráði sig: Sun 06. Jún 2004 04:47
Reputation: 0
Staðsetning: Westmannaeyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf BlitZ3r » Þri 21. Sep 2004 22:31

cfm = cubic feet per minute


BlitZ3r > ByzanT-
-
Intel p4 2.6 @ 3.06 MSI 848p-Neo 2x256mb kingston 400mhz 120gb S-ATA WD diskur PowerColor RADEON 9800 PRO 256mb