Zalman skjákortsvifta

Skjámynd

Höfundur
Sveinn
FanBoy
Póstar: 728
Skráði sig: Sun 07. Sep 2003 20:04
Reputation: 4
Staðsetning: Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Zalman skjákortsvifta

Pósturaf Sveinn » Sun 12. Sep 2004 02:17

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=734
- Hefur einhver reynslu af þessari skjákortsviftu?

- Heyrist eitthvað í henni?
- Kælir hún vel?
- Er hún svo þung að hún þarf undirstöðu?

Breytti: Biðst forláts á öllum þessum póstum sem ég er að gera þráðstjórar :)



Skjámynd

elv
Of mikill frítími
Póstar: 1980
Skráði sig: Sun 23. Mar 2003 21:53
Reputation: 19
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf elv » Sun 12. Sep 2004 07:51

Þetta er í rauninni risa heatsink, og pípunar eru til að flytja hitan á milli hlutanna, þetta kælir ekkert meira en viftunar sem koma með skjákortunum, hitin gæti jafnvel hækkað, enda er þetta gert til að vera hljóðlaust



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Zalman skjákortsvifta

Pósturaf MezzUp » Sun 12. Sep 2004 09:23

Sveinn skrifaði:http://start.is/product_info.php?cPath=76_46&products_id=734
- Hefur einhver reynslu af þessari skjákortsviftu?

- Heyrist eitthvað í henni?
- Kælir hún vel?
- Er hún svo þung að hún þarf undirstöðu?

Breytti: Biðst forláts á öllum þessum póstum sem ég er að gera þráðstjórar :)


- Ekki ég, en einhverjir hérna
- Nei, engir hreyfanlegir partar = ekkert hljóð
- Nei
- Nei

En sumir hérna hafa fengið sér svona til þess að lækka hljóðið, en sett um leið 2 kassaviftur til að auka loftflæðið.............. (jamm, skil ekki heldur :P)
Ég held líka að þetta taki yfir eitt PCI slot

Mátt endilega spyrja ef að þú setur póstana vel upp, og það er ekki búið að spyrja oft áður ;)




Coppertop
Staða: Ótengdur

Pósturaf Coppertop » Sun 12. Sep 2004 11:53

Ég Setti Heatpipe cooler og Zalman viftuna á Softmoddað x800 pro kort hjá mér og hitinn lækkaði um sirka 8°C í load og er algjörlega hljóðlaus í þokkabót, þannig að ég hef mjög góða reynslu af þessu setti :8)

ég á hinsegar eftir að mounta 120mm viftu við endann á kortinu þannig að hún blási inn undir kæliplöturnar en Zalman viftan frá kæliplötunum, það á að gefa manni einhverja auka gráður í kælingu :D

Muna bara að fara MJÖG varlega þegar þú setur settið á kortið! það er pínu þjált að koma því á en er alveg þess virði þegar maður er búinn.

Getur líka beðið gaurana í task um að gera það fyrir þig :8)



Skjámynd

Höfundur
Sveinn
FanBoy
Póstar: 728
Skráði sig: Sun 07. Sep 2003 20:04
Reputation: 4
Staðsetning: Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Sveinn » Sun 12. Sep 2004 12:23

Coppertop skrifaði:Getur líka beðið gaurana í task um að gera það fyrir þig :8)

Já góð hugmynd.. en ég er nobbari(á heima á Neskaupstað :).. svoo ég mun ekki bara skreppa í task til að láta þá smella þessu á :P



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1702
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: Zalman skjákortsvifta

Pósturaf Stutturdreki » Mán 13. Sep 2004 10:28

Sveinn skrifaði:- Hefur einhver reynslu af þessari skjákortsviftu?
- Heyrist eitthvað í henni?
- Kælir hún vel?
- Er hún svo þung að hún þarf undirstöðu?


Rakst á svona þegar ég var í Danmörk í sumar og skellti mér á það, (enda helmingi ódýrara heldur en hérna heima) og búinn að nota þetta í svona mánuð

Heyrist náttúrulega ekkert í þessu einu saman því það er ekkert sem hreyfist.

Ég var með tvær 80mm bakviftur (útblástur) og eina 80 viftu að framan(innblástur) en það var ekki að virka nógu vel. Áður en ég setti þetta á var hitinn á ati 9800 se SoftModdaða kortinu mínu (mælt á bakhlið) svona 42°C idle til 60° load. Þegar ég setti kæliplöturnar á setti ég hita-probe undir þannig að það snertir GPUið og þá mælist hitinn 54°C idle og upp í 65°C load, hætti reyndar því sem ég var að gera þegar hitinn var orðinn svona mikill þannig að hugsanlega verður þetta en þá heitara. Fór núna um helgina og keypti mér 92mm SilenX viftu og svo í Byko og keypti mér skrúfur og bolta og setti viftuna ofan á kæliplöturnar þannig að hún blæs niður á milli. Viftan var reyndar svona í stærra lagi, rétt kom henni fyrir á ská þannig að hún blási niður á milli og bæði yfir og undir en hún er næstum hljóðlaus (amk. yfirgnæfir stock Intel viftan allt hljóð í kassanun núna). Núna mælist hitinn 44°C idle og hef ekki náð hærra en 55°C eftir að hafa látið NWN ganga í 3 klst í hæstu gæðum og ágætis upplausn.

Þyngslin sveigja kortið aðeins niður, en ekki þannig að það sé hætta á að það brotni Meira vandamál þegar þú setur kortið í eða tekur það úr að þú mátt voðalítið koma við kæliplöturnar.

Það er ekkert svakamál að koma þessu saman, fylgja með leiðbeiningar upp á nokkrar blaðsíður og svo á heimasíðu Zalman. En náttúrulega ef þú treystir þér ekki til þess hugsa ég að flestar búðirnar séu tilbúnar að gera þetta fyrir þig.. en kostar örugglega smá :)