Besta CPU kælingin

Skjámynd

Höfundur
emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Besta CPU kælingin

Pósturaf emmi » Þri 27. Okt 2009 08:59

Hvaða CPU kæling er að standa sig best miðað við ykkar reynslu?

Ég hef verið að skoða CoolerMaster N520 sem og Cooler Master V8 sem er mjög massíft kæliunit, hefur einhver prófað þessar kælingar?




Taxi
spjallið.is
Póstar: 444
Skráði sig: Fös 17. Feb 2006 20:02
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf Taxi » Þri 27. Okt 2009 09:40

Ég held að þessi sé sú öflugasta sem fæst á landinu miðað við það sem ég hef lesið. http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1097


Asus P5N-E-SLI, E6300@3.5GHz m/Termalright Ultra, 4x1GB CL4 Black Dragon minni,Gigabyte 9600GT SLI@800MHz,160GB+500GB+2x1TB, pakkaði inn í Coolermaster Elite 332.

Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf Hnykill » Þri 27. Okt 2009 10:25

Taxi skrifaði:Ég held að þessi sé sú öflugasta sem fæst á landinu miðað við það sem ég hef lesið. http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1097

Þetta er alger hlunkur og kostar heilan helling jájá. en ekki nálægt því sú besta hérna á landinu. Thermalright Ultra 120 er enn þónokkuð betri en þessi. Xigmatek Dark Knight S1283 er líka mjög góð (var með svoleiðis). og Coolermaster V8 er líka þrusuöflug. og allar þessar kælingar eru betri en þessi sem þú nefndir.


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

FreyrGauti
Tölvutryllir
Póstar: 664
Skráði sig: Fim 04. Des 2008 10:29
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf FreyrGauti » Þri 27. Okt 2009 11:16

Ég myndi ráðfæra mig við þennan lista ef ég væri að leita að örrakælingu núna.




himminn
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 390
Skráði sig: Mið 27. Maí 2009 14:20
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf himminn » Þri 27. Okt 2009 11:48

Er með n520 og hún gerir sitt gagn þó hún geri það með pínu látum. En ég setti viðmót á vifturnar og það breytti hitatölunum ekkert þó lætin minkuðu svaðalega.



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf Hnykill » Þri 27. Okt 2009 11:52

FreyrGauti skrifaði:Ég myndi ráðfæra mig við þennan lista ef ég væri að leita að örrakælingu núna.

ég held nú síður !.. http://www.frostytech.com/top5heatsinks.cfm ef maður er með vit í kollinum ;)


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

FreyrGauti
Tölvutryllir
Póstar: 664
Skráði sig: Fim 04. Des 2008 10:29
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf FreyrGauti » Mið 28. Okt 2009 18:23

Hnykill skrifaði:
FreyrGauti skrifaði:Ég myndi ráðfæra mig við þennan lista ef ég væri að leita að örrakælingu núna.

ég held nú síður !.. http://www.frostytech.com/top5heatsinks.cfm ef maður er með vit í kollinum ;)


Já, ég tek ekki mikið mark á síðu sem listar stock intel kælinguna sem fimmtu bestu hljóðlátu kælinguna miðað við max viftuhraða.



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf chaplin » Mið 28. Okt 2009 20:36

Næsta fyrir valinu hjá mér er Scythe Mugen 2, er að fá svo snargeggjaða dóma! Er búinn að prufa flest allar "bestu" á landinu, Thermalirght 120 er mjög góð líka. Svekk að tvær bestu loftkælingar í heiminum séu ekki seldar á landinu, kostar mjög svipað og allar aðrar, eða TEC kælingar!




Taxi
spjallið.is
Póstar: 444
Skráði sig: Fös 17. Feb 2006 20:02
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf Taxi » Mið 28. Okt 2009 22:23

daanielin skrifaði:Næsta fyrir valinu hjá mér er Scythe Mugen 2, er að fá svo snargeggjaða dóma! Er búinn að prufa flest allar "bestu" á landinu, Thermalirght 120 er mjög góð líka. Svekk að tvær bestu loftkælingar í heiminum séu ekki seldar á landinu, kostar mjög svipað og allar aðrar, eða TEC kælingar!

Sammála, ég fæ mér liklega Scythe Mugen 2 næst nema eitthvað verulega betra verði komið á markaðinn.

Núna er ég með Thermalrigth Ultra 120 m/Sharkoon Silent Eagle 2000, 120mm viftu á 2000RPM sem blæs 76.4 CFM og er bara ekkert svakalega hrifinn, 38°C idle og 60°C í 100% load.
Það er alveg ásættanlegt, en ég bjóst við meiru, ég hefði átt að fá mér Thermalritgh Ultra Extreme 120, það munar talsverðu á þeim bræðrum.

Hvaða 2 "bestu" loftkælingar ertu að tala um.


Asus P5N-E-SLI, E6300@3.5GHz m/Termalright Ultra, 4x1GB CL4 Black Dragon minni,Gigabyte 9600GT SLI@800MHz,160GB+500GB+2x1TB, pakkaði inn í Coolermaster Elite 332.

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf chaplin » Mið 28. Okt 2009 22:34

Ultra 120 hefur verið að fá betri hita en extreme í sumum tilvikum, ótrúlegt en satt.

Annars eru þessar tvær OFUR bestur Prolimatech Megahalems oooog hin sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu! :twisted: Kostar minnir mig um $60, eða um 7.200kr, verslanir kaupa í magni og fá eitthvað endurgreitt ofl ofl.

Aðrar geðveikt góðar eru, CoolIt Domino, Lapped True 120 Black, Thermalright IFX-4 og Zalman CNPS10X. Scythe Mugen 2 er samt í sama flokki og allar þessar.

Note til tölvuverslana, farið að selja TEC! Eina leiðin til að fá hita á örgjörvum undir hita herbergis.. :wink:



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Besta CPU kælingin

Pósturaf chaplin » Fim 29. Okt 2009 03:18

Var að taka eftir að Mugen 2 kostar bara 9.777kr ef þú kaupir í gegnum shopusa.is, og eru þeir þekktir fyrir að vera ekkert ódýrir.